Skírnir

Volume

Skírnir - 01.01.1912, Page 41

Skírnir - 01.01.1912, Page 41
Steinbiturinn. 41 sjóvetlinginn sinn, dýfði honum ofan í sjóinn og slengdi honum af afli beint framan i mig. Húfan fauk af mér við höggið og ískaldur sjórinn streymdi ofan með berum hálsinum á mér, undir fötunum. Eg fór að gráta, en slepti þó ekki árunum, heldur reyndi að þurka framan úr mér sjóinn og tárin á erminni minni. Eg grét af gremju yflr jafn-hrópandi ranglæti, og mér var sýnt. Það vissi guð, að eg gerði það sem eg gat, þó að það hrykki ekki til. Og eg bað þess í huganum, að hann fengi að sjá þetta sjálfur. Rétt á eftir hægði Páll á sér. Hann var þá kominn svo nálægt bát Jónasar, að hann hlaut að sjá það, að' Jónas dró ekki hans lóð. Enda var það ólíkt Jónasi. í sömu svipan kom s t e i n b í t u r1) upp á lóðinni hjá Páli. Það var oíurlítið yrðlings-grey, ekki nema svo sem 12—18 þumlungar með hausi og sporði, en hann var sprækur og vel lifandi. Páll leit illilega og fyrirlitlega á þennan óboðna ódrátt. Var nú ekki aflaleysið nóg? Þurfti nú þetta endemis-kvikindi að koma upp úr sjónum til að ergja hann? Og það einmitt þetta sjókvindi, sem hann var uppnefndur eftir og ertur á. Steinbíturinn hafði gleypt beituna af mestu græðgi og ekki orðið öngulsins var fyr en hún var komin ofan í kútmaga. Síðan hafði hann verið að berjast við að æla henni upp. Og enn gapti hann vígtentu gininu af öllum kröftum. Páll gerði nokkra snarpa rykki til þess að hrista steinbíts-yrðlinginn af lóðinni, en hann fór ekki og taum- urinn slitnaði ekki heldur. Hann varð að taka á honum með höndunum. I því bili hampaði Jónas í Naustavík feitri, stórri ýsu á goggnum hjá sér til þess að storka Páli. Mér er sem eg heyri þau gleðilæti yfir í bát Jónasar, hefðu drengirnir þá vitað, hvað Páll var með í höndunum. *) Anarrhichas lupns (Linné).

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.