Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.01.1912, Side 43

Skírnir - 01.01.1912, Side 43
Steinbiturinn. 43 Hafl Páll gert mörgum manni órétt, sem vel getur verið, þá leið hann að minsta kosti ákaflega þessa stund- ina. Og það var ekki undan órétti nokkurs manns; það var það versta. Hann átti enga von um að geta hefnt sín. Hann byrjaði að draga lóðina, þó að blóðið drypi stöðugt úr hendinni á honum. En það setti að honum ákafan grát. Hann grét — með krampakendri ákefð. Hann reyndi fyrst að leyna mig því, en gat það ekki. Alt í einu svifti hann lóðinni sundur milli handa sinna, þeytti endanum út í sjóinn, settist niður og hálf-andvarp- aði til mín: »Róðu í land«. »Þú mátt fara heim til þín, skinnið mitt«, sagði hann við mig nokkrum dögum seinna. Þá var komin igerð í steinbítsbitið, svo að hann var handlama. »Eg þarf þin ekki með lengur«, bætti hann við þung- lyndislega. »Það er ekki til neins fyrir mig að fara á flot; eg fæ ekki bein úr sjó framar. Það er bölvun og fordæming yfir mér og veiðarfærum mínum. Getur verið, að mér sé það sjálfum að kenna; eg hafi unnið til þess. En eg fer aldrei á sjó framar. Enda á eg líklega skamt eftir ólifað. Mér hefir sagt fyrir, fyrst eg komst ekki á fætur á undan Jónasi í Naustavík. — Heilsaðu pabba þín- um og segðu, að hann megi sækja hlutinn þinn þegar hann vill. Og hérna, skinnið mitt, eru 20 krónur fyrir það, að eg var vondur við þig. Eg veit, að þú gast ekki gert betur. Þær áttu að eiga sjálfur. Vertu nú sæll!«

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.