Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.01.1912, Side 46

Skírnir - 01.01.1912, Side 46
46 Lífsskoðun Stepháns Q-. Stephánssonar. finningaskáld lítið. Vitið er að sjálfsögðu þuuglamalegra heldur en tilfinningarnar. Hann er í öðru lagi njyrðasmiður svo mikill, að hann yrkir nærri því á nýju tungumáli, og er það eitt ærið efni til þess, að hrinda alþýðu manna frá honum, sem varla skilur nýyrðin. I þriðja lagi eru skoðanir Stepháns andvígar ýmsum erfða- kenningum, sem venjan hefir löghelgað. Úr skoðunum höfundarins er Hfsskoðunin samansett. Hún er kjarni þeirra samandregin og soðin niður í svo litla íyrirferð sem hægt er að gera. En hún hefir aðdrætti af himni og jörð. Eg ætla í þessu máli að rannsaka lífsskoðun Stepháns G. Stephánssonar. Hún er vlðtækari heldur en lífsskoðanir annara skálda vorra, og stendur á fleiri fótum í nútíðinni. Nú kynni einhver að spyrja á þessa leið: Hvað er lífsskoðun? Lífsskoðun er skoðun mannsins á Hfinu og tilverunni: upphafi þess og enda, tilgangi, gildi og ákvörðun. Hún vísar manninum til sætis í höll lífsins og vísar honum veginn, sem hann á að fara. Lífsskoðun Bkálda vorra hefir verið með ýmsu móti og næsta sundurleit á yfirborðinu. En flestöll skáldin hafa þó hallast á þá sveifina, að meta manninn og mennina til eilífðarverðs og sálu- hjálpargildis. Hvort Búddha þessi, Hóraz’ hinn hallaðist kenning að, þriðji kendur við Kóraninn, kemnr i sama stað, segir Grímur gamli, — ef hann elskar sannleikann. Þarna sór lífs- skoðun hans. Karlmenskan mótar lífsskoðun Bjarna Thórarensens, ástin á fegurðinni gefur lífsskoðunum Jónasar og Steingríms byr undir báða vængi. Það er lífsskoðun Bólu-Hjálmars, að fógirndin dragi hvern mann niður fyrir allar hellur, en fátæktin ljúki upp hliðum guðanna. Þorsteinn trúir á frelsið. Hannes trúir á æsku- gleðina. Einar Benediktsson dáist að einhverju, sem ekki verða festar hendur á nó sjónum leitt. Matthías trúir á »sigur þess góða«. Þetta eru Hfsskoðanir þessara skálda. Einar Hjörleifsson ber »sannleikann og róttlætið« á vörunum, og eru þau hjónaleysi fögur á að líta. Skoðanir skáldanna koma að sjálfsögðu misjafnlega í ljós, eftir því hvaða yrkisefni þau velja sór til meðferðar. Aldurshæð skáld- anna hefir einnig áhrif á og vald yfir skoðunum þeirra. Lifsskoð-

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.