Skírnir

Volume

Skírnir - 01.01.1912, Page 61

Skírnir - 01.01.1912, Page 61
Lif8skoðun Stepháns G. Stephánssonar. 61 Og svo fyrir æskunnar oftraust naitt loks mér ellinnar vanmáttur hefndi. Mér miklaðist land þetta, mér er það nú sá Mólokk sem hörnin min hremdi. Patrekur stendur eins og steini lostinn og mænir í áttina, þangað sem drengirnir hurfu fyrir skógarbarðið. Og hann getur naumast tára bundist. Og bergmál þessa byrgða gráts kveður við í kvæði Stepháns eins og niðri í djúpum hyl. Hann veit það, að hann hefir sömu söguna að segja af sér og sonum sínum, þegar þeir vaxa. Mólokk Ameríku : auðfjandinn, hremmir þá og tortímir þeim, áður en varir. En ættjörðin fær hvorki fó eða son. Hún bíður hinum megin á hnettinum, þögul og fátæk, og er þó drotn- ing í sínu ríki. Ejærst í eilífðar útsæ vakir eylendan þín, nóttlaus voraldar veröld þar sem víðsýnið skín. Ættjörðin, heilaga landið, segir hann á öðrum stað. Þetta er hjartsláttur heitrar tilfinningar og augnaeldur brennandi ástar, sem er miklu meiri en svo, að orðin lýsi eða geti lýst henni til hlítar. Fjallkonan er svo fátæk, að hún getur ekki goldið daglaun börn- um sínum, svo að þau sóu anægð. Þau vilja hafa hátt kaup og góðan viðurgerning og alt útilátið á hverju kvöldi, það sem unnið er fyrir. Þau vilja ekki eiga inni hjá ókomna tímanum, hvorki alþýða nó embættismenn, og þeir þó enn þá síður. Stephán vill hitt: Að reikna ei’ með árum, en öldum, að alheimta ei daglaun að kvöldum, þvi svo lengist mannsæfin mest. Þetta er bæði vit og skáldskapur, Kolbeinn minn, og væri gaman að eiga mikið af svo frumlegum vitsmunaskáldskap. Eilifðarvonin i dáðgróðri lands, segir höfundurinn. Þá eru daglaunin ekki alheimt að kvöldum, þegar æfistarf ein- staklingsins lifir og varir í framförunum og framtíðinni. En þá er þó ekki að ræða um ódauðieik einstaklingsins, heldur er þetta svo að skilja, að heildin lifir og blómgast. Og þó er alt á faraldsfæti; því að sólnakerfum flæðir og fjarar. Og þá gengur líf sólkerfis vors upp í alheimsveldið, eins og þegar samnefnari gleypir brot.

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.