Skírnir - 01.01.1912, Page 84
84
Útlendar fréttir.
nátta frest til þess að allir útlendingar, sem þar búa, gætu komist
burt, ef þeir vildu, áður orusta yrði. Fl/ði þá fólk þúsundum
saman burt úr borginni. En 3. október hófu ítalir skothríð á
borgarvirkin. Stóð sú rimma í tvo daga, en þá höfðu þeir skotið
virkin svo í sundur, að Tyrkir gátu ekki haldist þar við lengur,
eða varið þaðan borgina, og landstjórahöllina höfðu þeir einnig
mjög skemt, því þangað beindu þeir líka skotunum. Nú settu
ítalir her á land í Trípólis og tóku borgina orustulaust. En her
Tyrkja flýði inn á auðnirnar fyrir ofan borgina. Einnig tóku nú
ítalir aðrar helztu borgirnar á ströndum Trípólis, svo'sem Benghasi,
Marsa Tobruk og Derna, og settu þar einnig her á land. Alls
var sagt, að ítalir hefðu um 40 þús. manna landher þar syðra,
þar af um helminginn við Trípólisborg. En herafli Tyrkja var í
byrjun ófriðarins talinn þar um 10 þús. manna.
Trípólis er bert land og gróðurlítið, þegar frá sjó dregur. Inni
í landi eru stórar sandauðnir, en milli þeirra bygð svæði. Þar búa
Arabar, hraustir menn og herskáir. í fornöld áttu Rómverjar
landið, og eru þar meðfram ströndunum enn mörg merki frá þeim
dögum. En nú hafa Tyrkir um margar aldir ráðið yfir landinu.
Þegar her ítala tók að fást við Tyrki og Araba í landorust-
um, fór honum að ganga miður. Þeir drógu her saman uppi í
landinu og gerðu þaðan harðar árásir á herbúðir ítala við Trípólis,
og eins við hinar strandborgirnar. Liðsauka mikinn fengu þeir og
nú frá Aröbum austan að. Varð nú um tíma fremur sókn en vörn
af þeirra hendi, svo að þeir jafnvel náðu aftur yfirráðum yfir
nokkrum hluta af Trípólisborg. Var þá barist þar inni í borginni
af mikilli grimd á báðar hliðar, og gengu af því miklar sögur,
sumar án efa nokkuð ýktar, og báru Tyrkir ítölum mjög illa sög-
una, sögðu, að þeir hlífðu hvorki konum né börnum. En í her-
búðum ítala geysaði um þetta leyti kólerusýki og var ástandið
þar hið versta. Foringi Tyrkja, sá er yfirstjórn er sagður hafa
haft 1 Trípólis eftir að landorusturnar hófust, var Enver Bey,
kunnur maður frá viðureign Ungtyrkjaflokksins við Abdul Hamid.
En yfirforingi ítalska hersins þar Byðra heitir Caneva.
Hersveitir Tyrkja og Araba hafa þó orðið að hörfa undan
aftur inn f landið, en ítalir halda öllum strandborgunum, sem þeir
tóku í byrjun ófriðarins. Ítalíukonungur gaf út boðskap um það
þegar í byrjun nóvember, að hann eftir tillögu yfirráðherra síns og
hermálaráðherra og með samþykki alls ráðuneytisins hafi ákveðið,
að leggja Trfpólis undlr yfirráð ítalska konungsrfkisins og að