Skírnir - 01.01.1912, Síða 86
«6
ITtlendar fréttir.
þe&su var illa tekiö í Mexíkó og mótmælti stjómin þar því fastlega,
að Bandamenn hefðu nokkur afskifti af styrjöldinni, er væri inn-
lend deila og ekki snerti á neinn hátt önnur ríki. Bandaríkja-
forseti lýsti því og yfir, að það væri ekki ætlun sín að grípa inn
í viðureign uppreisnarmanna við stjórnarherinn. En tilefni herliðs-
sendingarinnar suður að landamærunum sagði hann það, að upp-
reisnarmenn í Mexikó hefðu ráðgert að stofna nytt lýðveldi í Syðri-
Kaliforníu, en það kvaðst hann hindra með hervaldi, ef til kæmi.
Einnig sagði hann, að ef Diaz forseta yrði steypt i' Mexikó og þar
yrði stjórnleysisástand, þá sendi hann her inn í landið til þess að
halda þar uppi reglu.
Enn hélt styrjöldinni fram um hríð, og sóttu uppreisnarmenn
fastar á en áður. Vildu þeir engum sáttaboðum taka nema það
skilyrði fylgdi, að Diaz færi frá völdum. Það varð þá loks úr, að
hann lýsti því yfir, að til þess að friða landið, segði hann af sór.
Þetta gerðist 25. maí. En skarpt tók hann það fram í skjali til
þingsins, er hann beiddist lausnar, að hann gæti ekki fundið, að
nokkur stjórnarathöfn, sem hann hefði framið, gæti verið orsök til
borgarasty r j aldari n nar.
Forsetaembættið var svo til bráðabirgða falið fyrverandi utan-
ríkismálaráðherra de la Barra. Hann hafði áður verið sendiherra
Mexíkóríkis í Bandaríkjunum og mun því fremur öðrum hafa verið
talinn vel til þess fallinn, að koma á góðu samkomulagi þar í
milli. Madeiró afsalaði sór nú af frjálsum vilja því forsetanafni,
sem uppreisnarmenn höfðu áður gefið honum, og skoraði á alla, sem
sór hefðu veitt fylgi í baráttunni, að styðja sem best hina nýju
stjórn, og bað herflokka sína að ganga í hennar þjónustu.
Diaz fór þegar burt frá Mexikó, er hann hafði sagt af sór. Fór
hann burt með leynd úr höfuðborginni, en var fenginn herflokkur
til fylgdar. Á leiðinni þangað, sem hann ætlaði að stíga á skip,
var þó ráðist á hann af uppreisnarmannaflokki, sem í voru 700
menn. En þeir biðu ósigur fyrir fylgdarliði Diazar og fóllu af þeim
um 30. Komst svo Diaz burtu án frekari hrakninga. Hann var
nær 81 árs, er hann lagði niður völd, en hraustur og kjarkgóður enn,
eins og jafnan áður. — Það vildi til rétt á eftir, 7. júní, að mikill
jarðskjálfti gerði stórtjón til og frá í Mexíkó, og einna mest þó í
höfuðborginni. Þennan dag átti að taka þar hátíðlega á móti Ma
deiró uppreisnarmannaforingja, og voru margir þar komnir til og
frá að í því skyni. Þegar hræðslan greip fólkið út af jarðskjálft-