Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1925, Page 1

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1925, Page 1
Jón Jacobson. Jón Jacobson, fv. landsbókavörður, andaðist á heimili sínu í Reykja- vík eptir langa og þunga legu 18. dag júnímánaðar 1925, 64 ára að aldri. Hann var fyrrum, frá 1. okt. 1896 til 1. jan. 1908 eða rúm 11 ár, forstöðumaður Forngripasafnsins (forngripavörður) og var í minn- ingarriti safnsins, prentuðu í Árb. 1912, getið nokkuð um störf hans við safnið og vöxt þess á þeim árum (bls. 33—35). Aðalstarf hans varð flutningur safnsins haustið 1899, afAlþi ngishússloftinuá efri hæð og loft Landsbankahússins þess er þá var nýreist. Voru hin nýju húsakynni miklu rýmri en hinn fyrri og gat safnið því notið sín betur en áður, en engum mun samt hafa verið það ljósara en forstöðu- manninum sjálfum, hve þessi nýju húsakynni voru ófullnægjandi, fyrir safnið, svo sem það þá var orðið. Á þeim 11 árum, er Jón Jacobson var forstöðumaður safnsins, jókst það, aðalsafnið, um rjett 11 hundruð gripa, en síðustu árin bættust auk þess við heil 2 söfn, nefnilega Vidalinssafn, myntasafn eða myntasöfn bræðranna Lund. Þegar Jón Jacobsson fór frá var því býsna mikill munur orðinn á safninu frá því er hann tók við því. Því miður fjekk Forngripasafnið, fornfræði og menningarsaga vor ekki að njóta hinna miklu andlegu hæfileika Jóns; til þess voru forngripavarðarlaunin of lítil. Hann varð að hafa annað embætti á hendi, bókavarðarstöðu við Landsbókasafnið, að vísu lítið betur launaða en hina, en sú staða gerði daglega strangari kröfur og í henni hafði hann einnig fyllri not þekkingar sinnar, einkum sinnar framúrskarandi góðu kunnáttu í fornum og nýjum tungumálum. Þegar þáverandi landsbókavörður, Hallgrímur Melsteð, fjell frá, var Jón Jacobson vitanlega sjálfkjörinn eptirmaður hans. Hjer biðu Jóns mikil og merkileg störf. Fyrir atfylgi hans og viturlega framgöngu sem alþingismanns, — sem hann var þessi árin, reis af grunni hið lang- þráða Safnahús. Það var fyrst og fremst hugsað og smíðað sem Landsbókasafnshús, en fyrstu árin skyldi það geta rúmað öll hin söfnin einnig, sem þá voru til hjer. — Brátt kom raunar í Ijós, að Listasafnið komst ekki fyrir í nýja húsinu, með öllum hinum, og varð því eptir 1

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.