Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1925, Page 7
7
og hefir þessu eigi verið veitt athygli fyr. Sé það rétt, að hér sé að
ræða um Þórsnesþing fyrir 930, þá er nærri því skiljanlegt að höfundi
Landnámu verður á að kalla það fjórðungsþing. Hann veit, að þingið
er ekki allsherjarþing. Hinsvegar nær valdsvið þess lengra en venju-
legs vorþings. Málsefnið gerist vestur við ísafjarðardjúp og aðilar eru
búsettir þar. Hefði þingaskipun verið komin í endanlegt horf, hefði
málið legið undir Þorskafjarðar- eða Þingeyrarþing. En nú fór það til
Þórsnesþings. Þetta bendir höfundinum til þess, að Þórsnesþing hafi
þá staðið mitt á milli alþingis og vorþinga, og hann hyggur því, að
það hafi verið fjórðungsþing, eins og seinna var einmitt í Þórsnesi.
Af sögn Landnámu um víg Vébjarnar, verður það því ekki leitt,
að fjórðungsþingið í Þórsnesi sé eldra en 962. Ari getur, eins og
áður var sagt, um stofnun fjórðungaþinganna einmitt í sambandi við
fjórðungaskiptinguna. Þegar hann hefir sagí frá deilum Þórðar gellis
og Tungu-Odds, tölu Þórðar að lögbergi og fjórðungaskiptingunni, bætir
hann þessu við »En síþan váro sett fjórþungar þing*1). Að vísu er ekki
sagt berum orðum, að fjórðungaþingin hafi verið sett á sama alþingi
og atburðir þeir gerðust á, er áður var talað um, en næst liggur að
ætla, að svo hafi verið. Og þar sem Ari segir, að fjórðungarþing væru
sett, liggur næst að skilja það svo, bæði að þá hafi þessi þing verið
sett fyrir alla fjórðungana, og að fram til þess tíma hafi slík þing ekki
verið til í neinum af fjórðungunum. Að fjórðungaþingin hafi verið sett
um leið og landinu var skipt í fjórðunga, styrkist og við það, að aðrar
heimildir eigna Þórði gelli setningu þeirra. Landnáma segir, að hann
hafi »sett þar fjórðungsþing (o: í Þórsnesi) með ráði allra fjórðungs-
manna«2) og Eyrbyggja getur þess, að »þá er Þórður gellir skipaði
fjórðungaþing lét hann þar (o: í Þórsnesi) vera fjórðungsþing Vestfirð-
inga«3). Þessi orð má vitanlega eigi skilja á þá leið, að'Þórður gellir, upp
á eindæmi sitt, hafi leitt fjórðungsþingin í lög. í þeim felst ekki annað
eða meira en það, að Þórður gellir hafi átt forgöngu að því, að þing
þessi voru sett, og þau eru því í fullu samræmi við frásögn Ara.
Niðurstaðan af þessu verður því sú, að fjórðungaþing hafi verið
sett 962 í öllum fjórðungum landsins. Mun þetta og vera almenn skoð-
un fræðimanna nú á tímum. En það er jafnframt almenn skoðun, að
setning fjórðungaþinganna muni að mestu hafa verið fólgin í því einu,
að alþingi lögtók þau, en þingin sjálf hafi, annarstaðar en í Vestfirð-
ingafjórðungi, annaðhvort aldrei komist á fót, eða í öllu falli verði
eigi sýnt, að þau hafi nokkurntíma komist þar á fót. Og öllum virðist
1) íslendingabók útg. Golthers Halle 1892, V. 6, bls. 10.
2) II. 12 bls. 75.
3) Eyrbyggja útg. Gerings Halle 1897 X. 7 bls. 25.