Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1925, Síða 15

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1925, Síða 15
Í5 áttu heima á Lækjamóti í Víðidal og hafa væntanlega verið þingfastir í Húnavatnsþingi. Hver sækjandi málsins var, segir ekki. Þetta gæti bent til þess, að hér væri um fjórðungsþing að ræða. Þáttur Þorvalds Koðránssonar segir lítið eitt öðruvísi frá þessu. Getur þar eigi sekt- arinnar, en sagt er frá aðsúgnum, er heiðingjar veittu þíúm, er þeir »vildu ríða til várþings í Hegranes*1)- Þetta gerðist 984. Þorvaldur krókur bjó mál um víg Kálfs á Stokkahlöðu til Hegra- nesþings á hendur Ingólfi Þorvaldssyni2). Þorvaldur bjó á Grund í Eyja- firði og hefir vafalaust átt þing í Vaðlaþingi. Ingólfur hafði verið heimamaður Víga Glúms á Þverá og þingfastur með honum í Vaðla- þingi, en þegar málið hófst, hafði Glúmur sent hann frá sér norður í Þingeyjarþing til Einars Konálssonar. Málið sýnist vera höfðað á fjórðungsþingi í Hegranesi, því hvorugur aðilja er þingfastur þar, en þó báðir samfjórðungs. Mun þetta hafa gerst um 980. Þórarinn á Espihóli vill taka mál upp gegn Glúmi út af vígi Þorvalds króks og ráðgast um það við Þorvarð í Kristsnesi. Segir Þórarinn: »Óhógligt líst mér málit at flytja til alþingis við frændaafla Glúms«. Þorvarður segir: »Þar kann ek ráð til leggia, stefn hánum til Hegranesþings, þar áttu frændaafla ok mun þar torsótt at verja málit«. Tók Þórarinn þann kost og bjó um vorið mál á hendur Glúmi til Hegranesþings »því at allir samþingisgoðar, þeir er í því þingi áttu, voru bundnir í nauðleytum við Þórarin«. Þegar til Hegranesþings kom fékk Glúmur eytt málinu. Þó verður ekki séð, að hann hafi borið fyrir sig, að stefnt væri til rangs þings3). Það virðist augljóst, að mál þetta var höfðað á vorþinginu í Hegranesi (sbr. samþingisgoðar), og hefir sú málshöfðun verið einber lögleysa, því hvorugur aðilja var þingfastur þar. í Ljósvetningasögu segir að eptirmálin eptir Koðrán Guðmunds- son frá Möðruvöllum færu fram á Hegranesþingi4). Aðilar þess máls eru annarsvegar Eyjólfur á Möðruvöllum, bróðir Koðráns, sem var goðorðsmaður í Vaðlaþingi, og hinsvegar Þorvarður Höskuldsson á Fornastöðum, sem var goðorðsmaður í Þingeyjarþingi, og þingmenn hans. Aðilar eru því samfjórðungsmenn en ekki samþinga. Hvorugur þeirra á þing í Hegranesþingi. Hefði því verið ólöglegt að höfða mál- ið á vorþinginu þar. Málareksturinn er því aðeins löglegur, að um fjórðungsþing sé að ræða. Þetta gerðist um 1050. 1) Biskupasögur I bls. 47. 2) lsl. fornsögur I. Kbh. 1880 bls. 42. 3) Isl. fornsögur I. bls. 73—74. 4) Isl. fornsögur I. bls. 224 sbr. 273.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.