Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1925, Síða 28
26
í Landnámi Ingólfs, alt upp að Hvalfirði og Þingvöllum, er getið
um 22 landnema — með tveimur Ieysingjum. Fjórir bæir eru kend-
ir við þá (Skeggjast., Bíldsf., Steinröðarst. — ekki til = Stíflisdalur?
— og Vífilsst.) og tveir af þeim við leysingjana. Hinir bæirnir eru
kendir við landslag o. fl. eða ekki nefndir.
í landnámi Ketils hængs, milli Þjórsár og Markarfljóts má telja
23 lnm. eða fleiri. Ekki eru nema 7 býli af þeim kend við þá, og
er þar með talinn Dufþakur, eini leysinginn, sem getið er á því
svæði1). 15 bæirnir kendir við annað, flestir við landslagið, 1 ekki
nefndur, nema þá að Þórunnarhálsum. Þó nafngjafa- hlutföllin í land-
námi Ingólfs og Hængs, nái ekki Vs og Vs, þá mundi hlutfallið breyt-
ast’dálítið og jafnast, ef tekið væri alt Suðurland á sama hátt. Eigi
að síður má sjá af þessu, að fáir lnm. á Suðurlandi hafa kent við
sig bæi sína. Miklu jafnari — og með minstum mismun — eru hlut-
föllin í Borgarfirði.
Væri farið þannig yfir landið alt, yrðu hlutföllin enn önnur —
og eru margir þröskuldar á þeirri leið, eins og fyr er drepið á.
Með lauslegu yfirliti alls umhverfis, hefi eg hripað upp rúm 300
bæjanöfn lnm., eða rétt eins mörg og taldir eru lnm. í Ln. 1891,
enn þó tekið talsvert fleiri menn.
Af þessum bæjanöfnum eru rétt við 100 kend við þá menn,
er þar teljast bygt hafa. Og hin nöfnin verða um 200, þegar slept
er vafanöfnum og þeim, sem kend eru við aðra menn (Hróaldur á
Torfastöðum, Hróðgeir á Skeggjast. o. fl.). Má sumstaðar gera ráð
fyrir, að aðrir hafi bygt áður slíka staði, þó þeirra sje ekki getið.
Og annarstaðar að nafnið stafi frá síðari ábúanda. Nokkrir lnm. eiga
tvö bæjarnöfn og tveir þeirra þrjú nöfn (Ketill gufa og Eiríkur rauði
2-þl). Hér að auki koma í leitirnar 55 lnm., sem eru húsviltir á
þann hátt, að bæir þeirra eru nafnlausir.
Ekki þykir mér líklegt að lnm. hafi skírt þessa nafnlausu bæi í
höfuðið á sjálfum sér. Líkara að aðrir hafi skírt svo fyrir lnm. og
eftir þá, heldur en hitt, að felt hafi niður mikið af fornum nöfnum.
Margir námu dali eða firði. Er þá oft ílt að greina hvort bær
var samnefndur eða ekki.
Orðalagið í sögunum, eins og í Njálu: »Hjalti úr Þjórsárdak
(sem mun hafa búið á Skeljastöðum) bendir til þess að áður, og
1) Sjálfsagt fremur leysingi Hængs eða Sighvats á Bólstað (= Breiða-
bólsst. — Safn t. s. ísl. II. 502), en systkinanna vestlenzku, fyrir neðan
Þverá. Þ. e. sú Deildcirá, sem deildi Landeyjar af landnámi Hængs,