Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1925, Page 30

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1925, Page 30
28 er sama og Sumarliðabær í Holtum. Er þar eitt glögt dæmi um breytingar örnefna, því bær sá hefur tvisvar heitið Brekkur og tvi- svar Sumarliðabær. Verður það líka vel skiljanlegt á þessa leið: í fyrstu meðan Herjólfur Hængss. bjó þar, hét bærinn ekki annað en »undir Brekkum«. Meðan Sumarliði, sonur Herjólfs, bjó þar, var öðru hvoru farið að kenna bæinn við hann. En að honum látnum, á dög- um Veturliða skálds Sumarliðasonar, hefur eldra nafnið þótt viðfeldn- ara og tíðkast meira. Þegar svo var farið að byggja Brekkur í Hvolhr., Brekkur á Rangárvöllum og aðrar Brekkur í Holtum, þá þótti nauðsynlegt til aðgreiningar að fella úr gildi -elsta örnefnið, en festa nafn Sumarliða við bæinn, og hefur svo haldist óbreytt síðan. Það sést af þessu dæmi, að Hængs synir hafa haldið norræna nafngjafa- hættinum. Aftur á móti er eins og vestræna lagið liggi í blóði Baugssona: Eyvindur bjó á Eyvindarmúla og Eyvindarhólum, Gunnar í Gunnarsholti, og Steinn snjalli í Snjallsteinshöfða. Örnefnið s n j a 11 i hefur hann hlottið að líkindum fyrir þá snilli, að höggva Sigmund son Sighvats rauða banahögg — við Sandhólaferju. — Bardagi sá bendir á nágrannakrit i Hlíðinni og ósamlyndi um fleira en ferjubát- inn. Líka má skilja það, að Sighvatur rauði hafi komið út síðla á landnámstíma, þar hann svo göfugur maður og vandabundinn Skalla- grími, varð að flýja á náðir Hængs, er varð að hola honum niður í aðþrengsli annara lnm. — Sennilegt þykir mér og vel rökstutt álit Páls í Árkvörn. (Safn II, 501) að »Bólsstaður« Sighvats sé Breiða- bólsstaður í Fljótshlíð. Er þó eftir að athuga betur ýms atriði á því örnefna- og landnáms-sviði. Þó bæjanöfn Baugs- sona væru sett að vestrænum hætti, er því öðruvísi háttað með nöfn þeirra sjálfra. Þau eru austræn. Og er ljóst dæmið afkomenda Baugs, eins og margra verturlenskra manna um það, hve fljótt falla niður írsku nöfnin fyrir hinum norsku, þegar austmenn og vestmenn tengjast saman. — Langafi Baugs er talinn Kjarval írakonungur, og afi Baugs, konungssonurinn hjet Kjallakur, en þó finn eg ekki, að Baugur eða nálægir niðjar hans noti nöfn þessara nánu forfeðra og göfugu manna, Slept hefi ég í aðalyfirlitinu, bæjanöfnum sona Baugs og Hængs. Samt eru eftir í landnámi Hængs, að undanskildum (kynblendingnum?) Baugi, 16 menn, er telja má þar lnm. og af austrænum rótum runna. Við þessa menn eru kendir 2 bólsstaðir: Þórunnarhálsar og Lunans- holt, og 14 við eitthvað annað. En vestmenn má telja 7. Hjá þeim er 1 bæjarnæfn, Vætleifsholt1), í ósamræmi við hin: Hildisey Hall- 1) Nú Vetleifsh. Þar bjó Ráþormr. — Sbr. Vælugerði = »Velugerði«, Hælgi og mörg orð, sem eru rituð með æ í eldra máli, en e yngra.

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.