Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1925, Qupperneq 31
29
geirsey, Ljótarstaði, Dufþaksholt, Jólgeirsstaði og Áskelshöfða (síðar
Kaldarholt eða Kálfholt?).
Víðar ura land má sjá svipaðan mismun í nafnagjöfum austrænna
og vestrænna manna, þó ekki sje svo margfaldur mismunur sem hjer;
1 af 8, gegn 6 af 7. — En nú mun nóg komið af slíkum upptalningum,
Þó austrænu lnm. notuðu lítið í fyrstu vestræna lagið — er eg
nefndi svo — við nafngjafir bæja sinna hér, þá helst það ekki lengi.
Þegar bæjum fjölgar, þá fjölgar líka því meira að tiltölu þeim bæja-
nöfnum, sem fá nafnið eftir ábúendum. Mest er það fyrir viðbót, en
þó líka að nokkru fyrir breytingar (Fors = Rauðnefsst. Hvoll =
Stórólfshvoll, Brekkur).
Máltæki segir, að engin regla sé án undantekningar. Höfuðreglan
eða venjan fyrsta á þessu sviði breyttist líka bráðlega. Má ráða í það
af lauslegu yfirliti yfir staðanöfnin útaf fyrir sig, þau ein sem í
Ln. finnast.
í Noregi var að vísu nafnkendur Staður, en þar hefur þó ver-
ið fágætt að hnýta þessu nafni aftan við mannanöfn. Þó þetta verði
ekki sýnt hér né sannað, er fljótgert að benda á líkur. Heimskringla
Sn. St. kemur víða við og nefnir margar bygðir og býli í Noregi.
Þar eru þó ekki nema 7 nöfn, sem enda á »staðir«. Eitt af þeim er
bær á Sjálandi (Hringstaðir). Hitt bæir í Noregi: Álrekstaðir, Geir-
staðir, Hústaðir, Kviststaðir, Oprostaðir1) og Stiklarstaðir. —Ef þess-
ir bæir allir eru kendir við nöfn manna og viðurnefni, þá er ósam-
kvæmni í rithættinum: vantar s í 1., 2. og 6. nafnið norska. 4. er sum-
staðar ritað Kvist s staðir, og var það venjulegur ritháttur á slíkum
nöfnum á dögum Snorra.
Taki maður svo Ln. til sainanburðar, þá finnast þar ein 125 inn-
lend bæjanöfn, sem enda á »staðir« og »staður«. — En þar er eng-
inn bær, sem heitir ekki meira en Staður. — 7 eru þó með því
nafni, í sveitum, nú á dögum.
Af þessum bæjum held eg að nálægt 108 séu kendir við menn,
og hafi 93 á þeim dögum verið bústaðir manna af austrænum ættum-
Og munu flest þeirra orðin til á landnámsárum og litlu síðar.
Hinsvegar munu 15 af þessu nöfnum — eða þar um bil — vera
kend við vestræna menn — og eru Baugsstaðir taldir þar með.
Af öllum þessum bæjanöfnum, tel eg 13 vera óskyld manna-
nöfnum: Breiðabólsstaði sjö, (á einum þeirra, B. í Sökkólfsdal, hefur
að líkindum vestmaður búið), Hofstaði fjóra, Bólstað og Tjaldastaði1).
1) í Ln. (1843, 271) eru nefndir »Ofrustaðir«. Ekki má bæta þeim við ís-
jensku bæjanöfnin, því þetta er s a m i norski staðurinn. — Sést það af frásögn-
inni, þó ekki sé þess getið sérstaklega.