Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1925, Síða 37

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1925, Síða 37
35 Ur eða tengdasonur Þorkels Skíðasonar, því Þorkell hefur líklega numið þarna um 890—895.Bólstaðarhlíð er og stærsta jörðin í Svartárdal og hefur verið, — 60 hundr. að fornu mati (sjá Johns. jarðatal bls. 240.) Görnul munnmæli segja svo frá, að nautabú Hlíðar-bóndans hafi í fornöld verið þar sem Fjós eru nú. Síðar hafi þar orðið sjerstök jörð. Vel getur þetta verið rjett, því þangað eru aðeins þrjár stuttar bæjarleiðir frá Bólstaðarhlíð, og fornir stórbændur höfðu geldneyta- hús sín stundum allfjarri bænum, t. d. Ingimundur gamli á Hofi í Vatnsdal, sem hafði nautabú sitt þar sem Undornfell er nú (sbr. Vatnsd., bls. 66). Gerði maður nú ráð fyrir, að Ævarr hafi búið í Bólstaðarhlíð, þá hefði nautabú hans staðið í landnámi Þorkels Skíðasonar, og það var ekki líklegt, að Ævarr sýndi þann ójöfnuð. Enda var landnáms- mönnum annars meiri þörf en beitilands. — Til þess að sanna, að Bólstaðarhlíð hafi verið »Ævars forni garður.« yrði að hrinda öllum þessum rökum, sem vitna á móti því að svo hafi verið. Álit manna um þetta efni má því telja staðlaus- an tilbúning seinni alda manna, og sýnir aðeins tilgátugrufl um það, hvar Ævarsskarð hafi verið. Skal jeg þá víkja að frásögn Landn. um Ævar hinn gamla. Þó vil jeg minna á það þegar, að öll gögn, sem færð verða fyrir því, hvar Ævarsskarð hafi rjettilega verið, falla í sömu vogarskál, sem áðurgreindar ástæður. Því verði sannað, að Ævarsskarð hafi verið annars staðar, er tilgátan um Bólstaðarhlíð, þar með jarðsungin. Lesendum til frekari glöggvunar tek jeg upp í einu lagi frásögn- ina um þetta atriði í Landnámu (bls. 135—6): »Ævarr hét maðr, son Ketils helluflaga ok Þuríðar, dóttur Haraldar konungs gullskeggs ór Sogni. Ævarr átti..........Þeira son var Véfroðr. Synir Ævars laungetnir váru þeir Karli ok Þorbjörn strúgr ok Þórður mikill. Ævarr fór til íslands ór víkingu, ok synir hans aðrir enn Véfroður; með hon- um fór út Gunnsteinn frændi hans ok Auðúlfr ok Gautr, enn Véfroðr var eftir í víkingu. Ævarr kom skipi sínu í Blönduós; þá váru num- in lönd fyrir vestan Blöndu. Ævarr fór upp með Blöndu at leita sér landnáms, enn er hann kom þar sem heita Móbergsbrekkur, setti hann niðr stöng háva, ok kveðst þar taka Véfroði syni sínum bústað. Síð- an nam hann Langadal allan upp þaðan ok svá fyri norðan h á 1 s.1 2) Þar skifti hann löndum með skipverjum sínum. Æ v a r r bjó í Evarsskarði. Véfröðr kom út síðar í Gönguskarðsárós 1) Sbr. Um tímatal í íslend.sögum, eftir Guðbr. Vigfússon. Safn til sögu ísl., I. b„ bls. 248. 2) Og — >ofan til Ævarsskarðs,« segir Melabók. Það er líka keiprjett.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.