Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1925, Page 38
36
ok gekk norðan til íöður síns ok kendi faðir hans hanft
eigi. Þeir glímdu svá at upp gengu stokkar allir í húsinu áður Vé-
froður sagði til sín. Hann gerði bú at Móbergi sem ætlað var, enn
Þorbjörn strúgr á Strúgsstöðum, enn Gunnsteinn á Gunnsteinssíöðum.
Karli á Karlastöðum,1) Þórður á Mikilsstöðum. Auðúlfr á Auðúlfsstöð-
um. Gautr bygði Gautsdal .... Haukr bjó þar sem nú heita Hauks-
grafir. Véfroðr átti Gunnhildi dóttur Eiríks ór Guðdölum .... Þeirra
synir váru þeir LJlfhéðinn, er þeir Þjóstólfur vágu við Grindarlæk, ok
Skarphéðinn, er þeir Digr-Ormr vágu í Vatnsskarði, ok Húnröðr, faðir
Más, föðr Hafliða.........
Holti hét maðr, er nam Langadal ofan frá Móbergi, ok bjó á
Holtastöðum.«2)
í merkilegri ritgerð hefur dr. Björn M. Ólsen leitt rök að því,
að Ávellingagoðorð, sem nefnt er svo í Sturlungu, hafi heitið Æverl-
ingagoðorð og kent við Æverlinga, þ. e. afkomendur Ævars hins
gamla.3) Hafa ýmsir góðir fræðimenn fallist á þetta og menn mega
telja þetta rjett tilgetið. Vísa jeg til þeirrar ritgerðar um þessa hlið
málsins, en tek það aðeins fram, að dr. B. M. Ólsen leiðir ágæt rök
að því, að Æverlingagoðorð hafi legið um Miðfjörð og Vesturhóp í
Húnavatnsþingi. Landn. tekur það sjálf fram, að Hafliði Másson væri
fjórði maður frá Ævari í beinan karllegg. En Hafliði bjó á Breiða-
bólsstað í Vesturhópi og var mestur höfðingi uin 11. öld, á Norður-
landi (d. 1130, sjá ísl. Árt.skrár). Vatnsdæla tekur það beint fram,
að Húnröður og Úlfhéðinn, synir Véfroðar Ævarssonar, byggi á Mó-
bergi4). Og eftir daga Húnröðar flytur ættin búferlum vestur í Vest-
urhóp, nær goðorði vestast í þinginu og verður sögufrægust með Haf-
liða Mássyni.
Ef Ævarr hefði nokkurn tíma búið í Bólstaðarhlíð, mætti það mik-
illi furðu gegna, ef ættarinnar hefði aldrei verið getið á þeim slóðum.
Og undarleg misviska hefði það verið fyrir þeim bræðrum Úlfhéðni
og Húnroði að kiprast í tvíbýli á Móbergi og sleppa Bólstaðarhlíð úr
ættinni eftir Ævar dauðan! En þetta er alt ofur-skiljanlegt, þegar
1) Karlastaðir (nú Karlstaðir) er eyðikot i Auðúlfsstaðalandi. Mun hafa
lagst snemma í eyði. Á. Magnússon telur einnig í Auðúlfsstaðalandi — Há-
varðsstaði — forna eyðijörð. Sjá Johns., bls. 238.
2) Hauksbók segir að Evarr hafi andast í Evarsskarði en Sturlubók að
hann hafi búið þar.
3) Tímarit Bókm.fjel., II. árg., bls. 1—30.
4) Og sum handrit af Hallfreðarsögu. (Sbr. Fornsögur, Leipzig 1860. Hall-
freðarsaga, 10. kap.)