Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1925, Qupperneq 46
44
Þaðan fórum við inn á Bægifótshöfða. Það er klettahöfði, h. u. b. 3
mtr. á hæð, en lítill ummáls. Fyrir garðinum sjer vel og einnig dysinu;
er auðsjeð að það hefur verið rifið upp. Þegar garðurinn hefur verið
óskemdur, hefur ekki verið unt að komast af höfðanum eða fram á hann.
Þaðan fórum við á Bólstað. Jeg hefi engu að bæta við lýs-
ingar þeirra Sigurðar Vigfússonar og Brynjólfs Jónssonar.
Tóftirnar eru mjög ógreinilegar og ílt að átta sig á þeim. Jeg
stakk upp nokkra hnausa í syðsta hluta tóftar þeirrar er jeg áleit
verið hafa bæjartóft. 35 cmt. undir yfirborði kom ofan á gólfskán,
var í henni mikið af viðarkolum.
Úlfarsfellsá rennur skamt frá tóftunum og brýtur þar mjög upp,
væri nauðsynlegt að rannsaka tóftir þessar áður en áin brýtur þær
því að líkindum hefir enginn búið á Bólstað eftir Arnkel, svo húsa-
skipun er eins og var hjá honum; undirstöður líklega óhaggaðar, því
þar er sljett og harðlent.
Frá Bólstað fórum við inn að Hellu. Bærinn hefur staðið rjett
fyrir austan Örlygsstaðaá, norðan undir háum melhrygg, Iiggur túnið
umhverfis hrygginn og yfir enda hans, túnið hefur verið all-stórt og
túngarður um. Sunnan í melhryggnum eru kallaðir akrar; sjer þar
fyrir girðingum; er þar halli mikill og liggur vel við sól. Ofan á
bæjartóftina hefur verið bygður stekkur, sjer á gömlu veggina útund-
an stekkjartóftinni. Austur og niður undan Hellu er ennþá nefnd
Glæsiskelda, en hún er nú að mestu fylt af möl.
Skamt fyrir innan Hellu er skriðan Geirvör; af skriðunni sjestglögt
út á Úlvarsfellsháls; gat Snorri goði því vel sjeð Breiðvíkinga er þeir
riðu inn hálsinn, því hann hefur staðið innvert á skriðunni og horft út yfir-
Frá Hellu fórum við út yfir Úlfarsfellsháls. Engi það er þeir Þór-
ólfur bægifótur og Úlfar áttu saman, er all-stór mýri á hálsinum og
liggur nú undir Úlfarsfell og Hrisakot. Þar sjest fyrir rústum vest-
arlega á hálsinum, er gætu verið af stakkgarði Þórólfs. Af frásögn
Eyrbyggjasögu er auðsjeð, að Úlfar hefur komið ti' Þórólfs á hálsin-
um, þar sem hann hlóð heyinu. Á hálsinum er vatn; liggur vegur-
inn norðan með því; hann er nú sjaldfarinn, en hefur verið fjölfarinn
áður; þar eru troðningar miklir.
Framarlega i Þórsárdal er haugur Þórólfs bægifóts (samb. Árb.
Fornl.fjel. 1893). Mjer virtist syðsti hluti upphækkunar þessarar hafa
verið rifinn upp, en allur neðri hlutinn óhaggaður, og þar hygg jeg
að húsfreyja Þórólfs og sauðamaður hans liggi. Væri þörf að rann-
saka það nánar.
í vestur frá Hrísum, út við Svelgsá, við hraunið, er eyðibýli, sem
nefnt er Mosvellir, sjer þar fyrir túngarði, en túnið hefur verið fremur lítið.