Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1925, Síða 48

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1925, Síða 48
46 hjá garði hans, þeir er Snorri hefir drepit, sem Haukur, fylgdarmaður Snorra, liggur hjer hjá garði hans, er Arnkell hefir drepit«. í sambandi við þetta vil jeg geta þess, að Sigurður Vigfússon fornfræðingur getur þess til, að Öxnabrekkur sje ritvilla fyrir Selja- brekkur. Jeg held að Öxnabrekkur sje rjett. Seljabrekkur liggja of fjarri leið, er lá beinast fyrir þrælana, en Öxnabrekkur eru einmitt á leiðinni að Helgafelli þegar komið er innan að. 6. Júlí lagði jeg enn af stað, og var Jósafat Hjaltalín enn með mjer. Skoðuðum við þá fyrst eyðibýli, er heitir Vindás. Það er á svo kölluðum Skeiðum, (melar í Helgafellssveit, er alfaravegur liggur um). Á Vindási er túngarður um túnið, sem er lítið, 30 fðm. frá austri til vesturs og 45 fðm. frá norðri til suðurs. Útvið túngarðinn að vestan eru tóftir, þannig að innan túngarðsins er tóft sem er 15 mtr. á lengd og 4 mtr. á breidd; dyr eru á austur-hliðvegg nær norðurgafli; fram af dyrunum er tóft, sem líklega hefur verið and- dyri. Utan túngarðsins er tóft með tveim milliveggjum. Lengd þess- arar tóftar eru 17 metrar, en breidd 5V2 mtr. Túngarðurinn er milli- veggur í tóftum þessum. Við suðurenda vestari tóftarinnar, er lítil tóft jafn-breið henni, en tveir metrar á lengd; dyr hafa verið á vestur-vegg; en ekki sjest fyrir dyrum úr henni í aðaltóftina. Hjer um bil 15 fðm. frá er tóftarúst mikil, en óglögg. Litlunorðar er þriðja rústin; sú tóft er og mjög ógreinileg. Þessar rústir eru af útihúsum, sem síðar hefur verið bygt ofaná. Hjer umhverfis er nú mjög uppblásið, en hefur áður verið skógi vaxið. Hefur þá verið þarna mjög fagurt bæjarstæði. Útsýni mikið og fagurt, sjest um mikinn hluta sveitarinnar. Þaðan hjeldum við út að Kongsbakka, þar er fyrrum bjó Þor- móður, bróðir Steinþórs á Eyri. Þaðan fór með okkur Kristleifur Jónsson; hann er nákunnugur um þessar slóðir. Var ferðinni heitið að Grímshelli. Á leiðinni skoðuðum við eyðibýlið Gautsstaði. Þeir eru i Stað- arbakkalandi (Bakki hinn meiri); neðst í svonefndum Stórholtum; vestanvert við lítinn læk, er fellur ofan Gautsstaðagróf. Rústin er ógreinileg, en er þó sýnilegar byggingaleifar. Þessi rúst er mjög lík rústinni á Þorleifsstöðum. Báðar líklega frá sama tíma. Fyrir aust- an lækinn eru seltóftir; er tóft sú tvískift, eða tvær tóftir samhlaðnar. Sels í Gautsstaðagróf er getið í landamerkjaskrá Helgafells frá 1250. Fornbrs., I. b. Svo hjeldum við áleiðis að Grímshelli. Hann er í austanverðu Kerlingarfjalli, við Gríinsskarð. Hellirinn er hátt í fjallinu. Er all-bratt upp að ganga, um skriður, sem laust grjót er í. Aðaldyr hellisins
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.