Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1925, Síða 56
54
lét Ögmundr gjöra hús þar á melnum, ok bjó þar síðan«. Það er sá
bær, er lengi hjet á Mel, en nú Melstaður. En það land er Skeggi
seldi Ögmundi, hefur því áreiðanlega verið Hofsland, sem enn þann
dag í dag er sama og Melsland. Af þessu dreg jeg þá ályktun, að
þegar Ögmundur kom út, hafi Skinna-Björn verið dauður, Skeggi erft
Hofsland eftir föður sinn; en það legið þá ónotað1). Þess vegna selur
Skeggi landið, en Ögmundur velur sjer nýjan bólstað á landinu, öllu
fegri og hagkvæmari en á Hofi; því Hofsbærinn hefur þá verið úti
á enda landsins. Því rjett fyrir utan Hof voru aðrar fornar bæjarrústir
á líkum hól; var að eins breitt fláandi skarð á milli hólanna, en lítill
keldulækur rann niður skarðið á milli túnanna, er höfðu náð nærri
því saman. Þetta forna eyðibýli var kallað á »Steinsstöðum«. Hefur
því fylgt landið fyrir utan, út að Svertingsstaðaá. Mun það vera þar
sem Þórveig bjó, móðir þeirra Odds og Guðmundar, er fjellu í fyrir-
sátinni fyrir Kormáki Ömundarsyni skáldif sem segir í sögu hans, 5.
kap. Rak Kormákur þá Þórveigu í brott þaðan, og hefur þá að lík-
indum lagt landið undir Mel, sem það hefur tilheyrt síðan. Hafa því
þessi tvö fornbýli farið snemma í eyði, eftir sögunum að dæma. Og
þó þar hafi á síðari öldum verið bygð upp kot, sem hjáleigur frá
Melstað, þá hefur sú bygð varla staðið nema skamma stund.
Nú fyrir nokkurum árum hefur verið bygt nýbýli i Melstaðar-
landi, á fyrnefndum »Börðum«. Mun það vera á öðruhvoru þessara
eyðibýla, Hofi eða Steinsstöðum, en er þó kallað á »Barði«. Er slíkt
illa farið, þegar hin fornu býlanöfn og önnur örnefni eru lögð niður,
eða afbökuð; svo gleymast þau með öllu er tímar líða.
Jeg get ekki skilið svo við æskustöðvar mínar i Miðfirði, að jeg
ekki minnist hjer á tvö forn eyðibýli, er voru í Svertingsstaðalandi.
Þau hjetu á Hakastöðum og Hankastöðum. Á Hankastöðum voru
beitarhús þegar jeg var í æsku; var þó í daglegu tali kallað »uppi á
selinu«, því að áður fyr var þar höfð selstöð. Þar var stórt og fallegt
tún, sljettir hólar. Varið var það og slegið árlega að miklu leyti;
sáust þar fornar túngarðsleifar. Fornar rústir voru þar ekki; mun selið
1) Þá munnmælasögu heyrði jeg i æsku, »að Skeggi hefði haft annað bú
fram á Skeggjastöðum í VesturárdaÞ. Bendir hún til þess að hann hafi eigi
þurft að nota Hofsland sjálfur, og því selt það. Er margt ótrúlegra en það,
því fram í Miðfjarðardölum eru landskostir betri en út á Hjeraðinu og heiða-
lönd mikil. Vegalengd hefir viða verið meiri en þar á milli búa fornmanna. Að
Skeggjastaðir í Miðfirði hafi fyr heitið Skeggvaldsstaðir, eins og Margeir Jóns-
son getur til í ritgerð sinni í Eimreiðinni 29. árg., »Sannfræði íslenskra sagna«,
hefir að mínu áliti við ekkert að styðjast.