Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1925, Síða 60

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1925, Síða 60
58 sem voru heilir og með allsendis óslitnum tönnum; efri tanngarð vantaði. Bein þessi munu vera frá síðari öldum og þótti mjer ekki ástæða til að varðveita þau í Þjóðminjasafninu. Þau eru sennilega kristinna manna leifar og voru flutt í kirkjugarð Hafnarfjarðar. Er leitt er getum að því, hversu stendur á þessum grefti hjer utan kirkjugarðs á Hvaleyri, þar sem þó var kirkjugarður, notaður fram á 17. öld, og kirkja eða bænhús fram yfir 1760, má minna á frásagnir sjera Jóns Egilssonar í Byskupa-annálum hans, þar sem hann skýrir frá því, að á dögum Magnúsar Skálholtsbyskups Eyjólfssonar (1477—90), hafi ábótinn í Viðey ráðist á Englendinga, sem lágu hjer hjá Fornu'búðum, og unnið sigur á þeim, en mist þó son sinn í bar- daganum. Enn segir sjera Jón, að á dögum Stefáns byskups Jónssonar, árið 1518 eða þar um, hafi Englendingar og Hamborgarar í Hafnar- firði barist þar. »Unnu þýzkir og rýmdu hinum í burtu og fluttu sig fram á eyri og hafa legið þar síðan«, segir sjera Jón. Fornu-búðir munu hafa verið þar sem enn sjer leifar 2 stórra búða í túnfætinum fyrir austan Hjörtskot, en búð Hamborgara frammi á eyrinni mun hafa verið þar, sem nú heitir Skiphóll á Hvaleyrargranda. Menn þá er fjellu í fyrri bardaganum af liði ábóta, hefur hann óefað fært til graftar og Hamborgarar hafa einnig að sjálfsögðu grafið landa sína á heiðar- legan hátt. Um 30 árum síðar er þess getið, að þeir ættu sjer kirkju þarna. Aftur á móti munu bæði íslendingar og Hamborgarar hafa álitið hina ensku óvini sína, er þeir drápu, ófriðhelga menn, sem ekki sæmdi að veita gröft í vígðum reit. Þó þykir mjer líkast til, að bein þeirra þriggja er fundist hafa nú í Hvaleyrarbakka, sjeu fremur úr sjódauðum mönnum, er fundist hafa reknir hjer á Hvaleyri, en að þau sjeu bein nokkurra þeirra enskra manna, sem drepnir hafa verið hjer í öðrum hvorum þessara bardaga, því að sem mörgum mun kunnugt var sá siður algengur fyrrum, að jarða eða dysja ókend lík, er rak af sjó, þar nærri er þau fundust. Þau voru ekki færð til kirkjugarðs, heldur grafin í óvígðri mold, því að óvíst þótti, nema þau væru af ókristnum mönnum eða óbótamönnum. Hjer gengu fyrrum ræningjar oft á land, helzt Englendingar, sem stálu bæði fólki og fje, og eftir Tyrkjaránið var lengi uggur og ótti við útlendinga, sem voru á sveimi hjer við land. Matthías Þórðarson.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.