Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1925, Síða 70

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1925, Síða 70
68 Dagverðarnesi, Marknesi, Digranesi, Skálanesi og jafnvel Purkeyjar- ásum. Hingað og þangað liggja rif milli Skáleyjar og meginlands, en þó eru þau hvergi svo, að mögulegt sje að komast þurrum fótum fram í hana með vanalega íslendska skó á fótum. í vöðlunum eru nokkrir hólmar. Tveir allstórir hólmar eru vestanvert við Marknes, og heita þeir hvor um sig Einiberjahólmi (126), efri og fremri. Rif liggja fram að þeim, en fjarar í hvorugan; annar er nálægt Marknesi en hinn nálægt Skáley og stutt á milli þeirra, en sundin eru öll djúp. Það var talsvert af eini í nyrðri hólmanum. Við Digranes austan- vert er flaga, kölluð Digranesflaga (127). Vestan til í Vöðlunum, fram undan Skálanesi, eru margir hólmar og einn þeirra hár og stór, og er hátt rif fram í hann undan Skálanesi; þessir hólmar heita allir sam- eiginlega Vaðlahólmar (128). Ef farið er af stóra hólmanum yfir mjósta vaðalinn fram í Skáley, þá er komið undir Vesturhausinn (129), sem er nokkuð há borg. Austur at honum er vogur, kallaður Norður- vogur (130). Norður og austur af vognum eru holt, allstór um sig, ná upp að Vöðlum á móti Einiberjahólmunum; þau heita Norðurholt (131). Austast á Skáley er allstór borg, grasi vaxin; hún heitir Austur- haus (132). Undan honum eru nokkuð há rifjaslitur og liggja upp undir Borgartanga í Arnarbælislandi. Þetta eru kallaðir Austurvaðlar (133) . Við Austurhausinn beygist Skáley í nokkurn veginn beinni línu til útsuðurs í stefnu á Purkey, og syðst á henni heitir Skollatangi (134) . Austan við hann er hólmi, sem heitir Skollhólmí (Skollahólmi). (135) Um miðja Skáley er dálítil tjörn, sem hefir þó verið kölluð Skáleyjarvatn. Vestan-til við voginn, hjá Skollatanga, er lyngi vaxinn hólmi, kallaður Vörðuhólmi (136). Vestanvert á Skáley er bærinn og dálítill túnblettur í kring. Þar rjett hjá er Litla-Purkey. Sundið milli Skáleyjar og Purkeyjar heitir Skálastraumur (137); gæti hafa verið Skáleyjarstraumur. Vestast I straumnum eru sker, fram undan túninu; þau heita Bæjarsker (138). Nokkru innar er hólmi, sem heitir Lik- hólmi (139). Inn af honum er sker, sem tæpast fellur yfir, kallað Spillisflaga (140). Milli hennar og Vörðuhólmans er sker, sem heitir Spillir (141). Við Spillisflöguna sunnanverða er steinn, sem kallaður er Reiðsteinn (142); þegar fallið er ofan í hann miðjan, er reitt orðið yfir Skálastraum og fram í Purkey, en þegar þurt er fram á hann af flögunni, þá er vel vætt yfir strauminn frá flögunni, en það verður ekki nema um stærstu fjörur. Nú hefir Skáley ekki verið bygð um langan tíma, en þó hefir alt af verið haldið þar við húsum, og húsfólk oftast verið þar. Þó hefir átt að heita búið í henni nokkur síðustu ár; en það mun ekki eiga við á þessum stað, að tala um, hve nær Skáley hefir verið bygð
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.