Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1959, Blaðsíða 24
GRÖP í ÖRÆPUM
27
í baðstofu (V), cldstæði fyrir miðju, dyrnar til vinstri. — The bathroom (V);
fire place in the centre, door to the left.
það fullt af steinum, sem flestir voru hnefastórir eða nokkru stærri.
Þeir voru mjög stökkir og sprungnir og höfðu margir klofnað í
smátt. Svarar það til þess, að þeir hafi verið hitaðir og kældir á
víxl, t. d. með því að skvetta á þá vatni, á meðan þeir voru heitir.
Sumir hlóðasteinarnir voru einnig svipað leiknir. Virðist mér trú-
legast, að hér séu leifar bctðstofu. Hafi verið bekkir með veggjum
fram, en steinarnir hafi verið hitaðir á glóð í eldstæðinu og síðan
skvett á þá vatni, til þess að fá gufu í húsið. Vera má, að opið
hafi verið inn í IV og hafi mátt gefa þaðan á heitu steinana, en
það er þó vafasamt.
Eins og fyrr var getið, lá steinn þvert í dyrunum, og hefur þrösk-
uldurinn líklega legið á honum. Efri brún hans er 1,53 m hærri
en varinhellan, og lætur því nærri, að þröskuldur baðstofu hafi
verið í svipaðri hæð og efri brún útidyra, og mætti ætla að það
sé ekki tilviljun. Kalda loftið, sem kemur inn um útidyr, leitar