Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1959, Blaðsíða 72
74
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
Snældusnúðar (601, 610, 708 og 710). Kola (606). Brýni (622 og 728 ofar, 604
ne'öar). — Some stone objects found in the ruins.
611. Glossasteinn (opal), flatkúlulagaður, hvítur og næstum glær, þvm. 1,5
—2,2. Hefur líklega verið hirtur sem einkennilegur steinn, en er helzt til lítill
sem eldsteinn. — III, við þverpall.
612. Steinn úr hvítu, hálfglæ.ju kvarzi, aflangur, 1. 4,4, þ. 2,6. í hann eru
dældir eins og eftir þrjá fingurgóma. Ef til vill notaður sem eldstcinn. —
III, gólf.
613. Þynna úr látúni, óskreytt, 1. 3,5, br. 0,8, þ. 0,3. Við hana eru fastir
ullarþræðir og lítilfjörlegar trjáleifar. — III.
614. Brýni (úr leirskífer), brotið af öðrum enda, talsvert brýnt og dældótt.
L. 9,4, br. 2,0, þ. 1,2. — II, á syðra seti.
615. Efri endi af járnnagla{1). Lengd brotsins er 3, þvm. haussins 0,9—1,3,
og hefur hann verið aflangur og naglinn líklega dálítið flatur í sömu átt.
Mjög ryðbólgið. — III, gólf.
616. Ryðklumptir, tré með járni innan í. L. 9,4, þvm. 4—5. Ef til vill eru
þetta hjarir af hurð, en ekki er hægt að sjá það með vissu. — III, við stoðar-
leifar í dyrum.
617. Okar af lcambi. Virðist hafa verið líkur mynd 202 í S. Grieg: Middel-
alderske byfund, okar hafa verið tvennir, 1. 9,4, br. 0,8, negldir saman með
4 látúnsnöglum hvorir, en naglarnir hafa verið hauslitlir og dregizt út og