Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1959, Blaðsíða 41
GRÖP í ÖRÆPUM
43
heldur 1,5—1,9 m frá þeim. Varla er að efa, að þriggja ása þak
hefur verið á hlöðunni, reft út á veggi og hella á röftunum undir
torfi, og sáust þess ljós merki, þegar grafið var upp úr tóftinni.
Hurð eða grind hefur eflaust verið á milli fjóss og hlöðu, en ekki
fundust nein merki þess hvar hún hefur verið.
Fjósflórinn virtist vera mykjulaus undir vikrinum, en ef til vill
hefur öll mykjan, sem kynni að hafa verið þar, rotnað burt. I
hlöðu hefur ekki verið hey, en veggjarholur voru flestar fullar af
heymusli og moði, og það sýnir, að þess hefðu átt að sjást glögg
merki, ef hey hefði verið í hlöðunni.
* * *
Árið 1712 var ísleifur Einarsson sýslumaður staddur á Hofi í
Öræfum. Hann gerði þá skrá „Um jarðir, flestar af jökulhlaupum,
sandi og eldi eyðilagðar í austari Skaftafellssýslu“. Þar scgir mcðal
annars: „Gröf halda menn bær heitið hafi í útnorður frá Hofi,
það er fyrir vestan Skriðulæk upp undir fjallinu. Þar sést enn til
tófta og hefur fundizt af eiri og látúni. Á milli þessarar Grafar
og Hofs er steinker, sem sagt er taki 18 tunnur.
Gröf Innri er sagt bær heitið hafi. Það er nær hestskeið frá
áður nefndri Gröf. Þar hefur nýlega sézt til tófta. Hvorutveggja
þetta er í Hofs landi“5).
Ekki verður dregið í efa, að rústirnar í Borgartúni eru þær, sem
ísleifur kallar Gröf. Kofa- og borgarrústirnar þar eru án efa yngri
en frá 1712, en áður en þessi mannvirki voru gerð þar hafa bæjar-
rústirnar verið greinilegar, sbr. orð ísleifs: „Þar sést enn til tófta“.
Eftir að fjárborg var byggð ofan á rústirnar, sem hylur þær, og
tún gert á staðnum, var eðlilegt að Borgartúnsnafnið útrýmdi hinu
gamla heiti, en hins vegar hélzt nafnið Gröf á grastorfum tvö til
þrjú hundruð metrum innar með hlíðinni, þar sem staðhættir svara
betur til merkingar nafnsins, enda hefur Gröf innri líklega verið
þar, en rústir hennar sjást nú ekki lengur og hafa raunar verið
horfnar árið 1712, annaðhvort blásnar burt eða grafnar undir aur-
um Hvalvarðargilslækjar, sem hefur borið þar mikið grjót upp að
brekkurótum.
Gröf var einn af bæjunum í þeirri blómlegu sveit, sem nefndist
Hérað, Litla-Hérað eða Hérað milli sanda. Það var kjarninn í ríki
Svínfellinga, og margt stórmenni hefur búið þar, og hefur Sigurður
Þórarinsson sýnt, að þar h'afi ekki verið færri bæir en 30°).