Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1959, Blaðsíða 29
32
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
steinn við austurvegginn, og er líklegt að innsta stoðin hafi staðið
á honum, því að þaðan er aðeins 1,50 m inn að gafli, en þar er
eldstæðið í króknum, og þar getur ekki hafa verið stoð. Ekki voru
neinar stoðarholur við vesturvegg, en með hæfilegu bili voru þar
4 steinar, sem vel hefðu mátt bera stoðir, hinn syðsti við þilsend-
ann, en hinir með 1,40 m millibilum. Þá er og steinn 1 m innar
í sjálfu norðvesturhorninu, en óvíst er hvort hann getur hafa borið
stoð, því að hann er ekki traustur. Trúlegt er, að stoðirnar hafi
staðið undir staflægjum, og síðan hafi verið sperruþak á húsinu.
„Hlóðirnar" í norðausturhorni búrsins voru 70 sm langar frá austri
til vesturs og 40 sm breiðar. Steinninn sunnan ,,hlóða“ var 30 sm
hár, en eldleifar í ,,hlóðunum“ náðu nokkru dýpra niður, en blönd-
uðust mold og sorpi neðst. Mest bar á grárri og bleikri ösku, en
litt sá til viðarkola, og er trúlegt að einkum hafi verið brennt
skán og torfi eða mó.
Grjótveggur
WoII stones
Ömœldur veggur
Unmeasured wall
Steinn
Stone
Gólfhello
Paving
Hello ó rönd
ílagstone on edge
Sofnhús. — Tlie kiln liouse.
Sofnhús. Norðvestur frá VII, búri, í 10 m fjarlægð (miðað við
innri brún veggja) fannst hús, sem við nána athugun reyndist vera