Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1959, Blaðsíða 104
106
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
hefur höggið komið að ofan. Á standliðnum er standtoppurinn (apex
dentis) sniðinn af með hvössu áhaldi, því skurðflöturinn er sléttur,
einkum að aftanverðu, sem bendir til þess að þar hafi höggið
komið á.
Þessi bein eru úr 25—30 ára karlmanni, 166 cm að hæð, breið-
höfða með lítið og lágt höfuð. Augntóttir eru óvenju lágar miðað
við breidd þeirra og andlit og nefstæði frekar breiðleit.
E5: Efri hluti hvirfilbeina, brot úr vinstra gagnaugabeini og tvö
smábrot úr kúpuhvolfinu. Ennfremur hægra viðbein og hluti af
vinstra upparmshöfði.
E U. Standliður, sem stýft hefur
verið ofan af með snöggu liöggi. —
Axis, top of which is cut off by a
swift blow.
Beinin eru úr fullorðnum manni (sennil, 30—40 ára), en um
kynið verður ekki sagt með neinu öryggi, þó viðbeinið sé frekar
úr karli en konu.
Eftir eru þá hluti af lærlegg og bringubeini, fjöldi rifbeina og
nokkrar kjúkur úr fæti og hendi. Áverkar voru ekki sjáanlegir á
neinum þessara beina og ekki ástæða til að ætla annað en þau séu
úr einhverjum ofantalinna fimm beinagrinda.
Nú er að athuga, hverra bein þetta séu, eða öllu heldur líkurnar
fyrir því, að þetta geti verið bein þeirra Englendinga, er heimildir
geta um að látizt hafi í bardaga við Mannskaðahól.
Tala mannanna er langt innan við þann fjölda, er Skarðsárannáll
getur um og tekið er eftir Magnúsi prúða, en hins vegar gæti hún