Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1959, Blaðsíða 76
78
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
kolur á Þjóðminjasafninu. Mjög sótug innan á börmunum, en hefur þó líklega
verið tekin úr notkun, áður en bærinn fór í eyði, þar eð hún lá á hvolfi innan
um annað grjót út við vegg í austurenda á II.
717. Eirþynna í mörgum brotum, það stærsta 3,5 í þvm. Hnoðnaglar í sum-
um brotanna. Lík 701 og fannst á svipuðum slóðum, í II austarl. á syðra seti.
Á sumum brotunum virðist vera sót.
718. Brýnisbrot, ferstrent, allmikið brýnt. L. 8,6, þvm. 2,5x2,0 í gildari
enda, en 1,6 x 1,6 í þann mjórri, og þar hefur það brotnað í sundur. Efnið er
grátt flöguberg (glimmerskífer). — II austurendi, við brún syðra sets.
719. Eirþynna, upphaflega lang-tígullaga, síðan beygð utan um gjarðar-
enda og loks hnoðaður nagli í gegnum allt saman. L. 2,0, br. 1,1, lengd nagla
0,8. Vafalaust hnit af gjörð, og má heita alveg eins og Þjms. 7735, sem fannst
í rústum Lundar í Fljótshverfi. — II, rétt við norðurvegg.
720. Brýnisbútur úr gráu flögubergi (glimmerskífer). L. 10,3, br. 3,1, þ.
I, 4, mikið brýnt. — II, vestarlega í brún nyrðra sets.
721. Sýnishorn af Ijósleitu efni með ryðskán utan um, uppruni óviss. —
II, á norðui’seti.
722. Hlutur úr gráum leirsteini, svipaður því sem brotið væri aftan af
flötu skafti; er því brotflötur á öðrum enda, en ávalt fyrir hinn. Ofan í hlið
hlutarins við þann enda er lítil hola, kringlótt eins og í kolu. Vidd holunnar
er 2,3 og dýpt 1,0. Lengd alls hlutarins er 6,8, br. 3,2, h. 2,1. Ef til vill hefur
verið búið til leikfang, dvergkola, úr brotnum hlut. Allur er gripurinn ólögu-
legur. — II, við norðurvegg.
723. Blágrænt jaspisbrot með gulum kjarna, þvm. 3,3. Litfagur steinn, not-
hæfur til að slá eld við. — II, við frambrún syðra sets.
724. Endi af brýni úr gráu flögubergi (glimmerskífer), hefur verið gat á
br.'ninu, og þar hefur það brotnað. L. 2,2, br. 1,8, þ. 0,5. — II, vestarlega
í nyrðri setbrún.
725. Brýnisflís úr sama efni. L. 10,0, þvm. 1,1 x 1,0. Brýnið er mikið brýnt
og hefur bæði klofnað og brotnað. — II, litlu austar.
726. Hálfglær ópal með grænum flötum. Þvm. 2,6. — II, við syðri setbrún.
727. Brýnisflís úr gráu flögubergi. L. 6,0, þvm. 0,6 x 0,8. — II, við syðri
setbrún vestarlega.
728. Klofningur úr brýni úr sama efni. L. 5,8, br. 3,6, þ. 0,8. Hvergi slit-
flötur, og er líkara því að þetta sé klofið úr brýnisefni en notuðu brýni. —
II, rétt hjá 727 við setbrún.