Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1959, Blaðsíða 130
132
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
arlegt og á að geta enzt lengi. Bjarni Pálsson, fulltrúi á Selfossi,
teiknaði þakið í samráði við safnið og fylgdist með verkinu, en
yfirsmiður var Jón Kristinsson, Selfossi. Verkið gekk vel, og þykir
öllum, sem að Stöng koma, sem hinar fornu rústir hafi aldrei notið
sín eins vel og nú, svo mjög sem þetta nýja þak ber af hinu gamla.
Aðsókn að staðnum var til muna meiri en mörg undanfarin ár,
og bendir allt til að vinsældir þessa staðar eigi enn eftir að verða
miklar.
Gömlu byggingarnar eru yfirleitt mjög vinsælir viðkomustaðir.
Á hverju ári koma fleiri þúsund manns að Keldum og Hólum, en
nákvæmar tölur eru ekki fyrir hendi. Að Glaumbæ komu á þessu
ári 5000 manns, en í Víðimýrarkirkju um 1000. Öll hin gömlu húsin
eru líka mikið skoðuð, þótt gestir séu ekki taldir þar, en aðsóknina
má nokkuð marka af tölunum frá þessum tveimur stöðum. Hinar
gömlu byggingar, sem safnið varðveitir, eru sem óðast að verða
fastur dráttur í svip landsins, áfangar sem fólk veit af og vill hafa.
Fornleifarannsóknir. Gísli Gestsson safnvörður dvaldist að Hofi
í Öræfum 21. júní — 2. ágúst og lauk á þeim tíma við að rannsaka
bæjarrústir þar sem heitið hefur í Gröf í fyrndinni. Bærinn hefur
farið í eyði í Öræfajökulsgosinu mikla 1362 og húsin grafizt undir
vikri. Rústirnar eru mjög skýrar og sambærilegar við Stöng í Þjórs-
árdal og aðrar slíkar. Uppgröfturinn er án efa einn hinn merkasti,
sem gerður hefur verið hér á landi, og fundust þar m. a. einstök
hús, svo sem baðstofa (í upprunalegri merkingu orðsins) og sofn-
hús, og eru bæði ómetanlegar heimildir, hvort á sínu sviði. Aftur
var mokað ofan í þessar merku tóftir, þegar rannsókninni var lokið,
svo að þær geymast óskemmdar til framtíðar.
Af öðrum rannsóknum ársins ber helzt að nefna rannsókn tveggja
fornaldarkumla í Gilsárteigi á Fljótsdalshéraði. Þá rannsókn gerði
Jón prófessor Steffensen fyrir safnið. Aðrar rannsóknir voru minni
háttar, en starfsmenn safnsins þurftu að fara á allmarga staði til
athugunar og eftirlits (Gullbringuhraun, Ólafsvík, Vatnsholt í Flóa,
Þingeyri, Hvítárvatn, Meðalland í Skaftafellssýslu o. fl.) auk hinna
mörgu ferða vegna gömlu bygginganna. Eftirlitið með þeim fer
alltaf vaxandi og tekur meira og meira af starfstíma sumarsins.
Meðal annars þess vegna eru ekki gerðar eins margar rannsóknir
og æskilegt væri, en þó reynir safnið að láta ekkert ár líða án þess
að bera við eitthvað af því tagi.
K. E.