Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1959, Blaðsíða 9
12
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
fyrir bæjardyrum, þar sem lokræsi lá þvert yfir það. Hlaðið var
þar nær 4 m breitt, hlaðið upp að framan, og var frambrúnin um
40 sm há.
Við bæjardyrakampinn, 1 m austan dyranna, stóð steinn upp við
vegginn, og var skál ofan í hann, 45 sm víð og 12 sm djúp. Nokkuð
er sprungið úr barmi skálarinnar, og getur hún því ekki staðið full
af vatni. Ekki verður með vissu séð, að skálin sé klöppuð í stein-
inn. Svipaður steinn fannst í bæjardyrum á Þórarinsstöðum á Hruna-
mannaafrétti3). Trúlegt er, að skálin hafi verið notuð sem mundlaug.
Eins og meðfylgjandi uppdráttur ber með sér, greinast bæjar-
húsin í sambyggðar tóftir. Austast og vestast hafa hús snúið göflum
fram að bæjarstéttinni, og þar hafa verið dyr á þeim, en ekki
innangengt í önnur hús. I hin húsin er gengið úr einum bæjardyrum
á miðjum framvegg húsanna. Vestan dyra tekur bæjarröðin norð-
lægari stefnu en austan þeirra. Ekki er beint dyrasamband á milli
tóftanna, heldur greinast göng frá bæjardyrum til hinna einstöku
húsa (sbr. þó I og II hér á eftir). Víst er, að stærsta tóftin hefur
verið þiljuð í tvennt, og víðar hafa verið þverþil í tóftunum. Ekki
hef ég merkt nema 7 hús á uppdráttinn þó ef til vill væri réttara
að telja þau 9. í lýsingu rústanna, sem hér fer á eftir, er uppdrátt-
urinn og merking hans sífellt hafður í huga.
I. Bæjardyr. Húsið er alls um 7,20 m langt, en nokkuð mis-
breitt. Yzt frammi við stétt er dyratóftin 1,20 m víð, en þegar
kemur inn fyrir bæjarvegginn víkkar húsið í 1,70 m, en smáþreng-
ist svo aftur og er efst (eða innst) aðeins um 1,20 m að vídd.
Gólfið er hellulagt vandlega eftir miðju, og er raunar lokræsi undir
hellunum, og verður vikið að því síðar. Utarlega í bæjardyratóftinni
50 sm innan við kampana, standa tveir steinar á gólfi út við vegg-
ina. Þeir eru sléttir að ofan og mátti sjá á því hve laus vikurinn
var yfir þeim, að þar höfðu dyrastafirnir staðið. Á milli þessara
stoðasteina er 80 sm bil. Ekki sáust ljós merki eftir þröskuld. Við
innri kamp veggjar að austan stendur steinn, og sáust óljós merki
þess að þar hafi staðið stoð, en að vestan sáust þess ekki merki,
en þar eru einnig steinar vel fallnir undir stoðir. Bilið á milli
stoða hefur þá ekki verið minna en 90 sm, en trúlegt er að þama
hafi verið þiljað á milli og dyr á þilinu og forstofa eða fordyri
fyrir framan það.
Vesturveggur I er allur hlaðinn úr grjóti, nema þar sem göng