Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1959, Blaðsíða 117
í ORMS GINI
119
ATHUGASEMDIR
1) íslenzk fornrit V, bls. 19—80.
2) Brotin af Húsdrápu eru varðveitt í Snorra Eddu, sbr. einnig eftirfarandi
ummæli í þeirri bók: „Úlfur Uggason hefir kveðið eftir sögu Baldurs langt
skeið í Húsdrápu", og „Úlfur Uggason kvað í Húsdrápu langa stund eftir
þeirri frásögn", þ. e. um deilur Heimdalls og Loka. Orð Snorra sýna, að Hús-
drápa hefur verið langt kvæði.
3) Sjá ritgerð Kristjáns Eldjárns: Carved Panels from Flatatunga, Iceland,
Acta Archaeologica, Vol. 34, 81—101. í ritgerð sinni bendir Kristján á ummæli
Sigurðar Guðmundssonar málara og lýsingu Bólu-Hjálmars á myndunum. Ef
orðum Hjálmars er treystandi, hafa myndir í Flatatungu sýnt orrustur, og
hefur því verið um myndir af fornum hetjusögum að ræða. Sigurður málari
hefur það eftir Jónasi Hallgrímssyni, að þar hafi verið myndir af útlendum
riddurum. Slíkt gæti bent til suðrænna riddarasagna.
4) Refill þessi er enn til. Er í Cluny-safninu í París. Um hann sjá Gertie
Wandel, To broderede Billedtæpper og deres islandske Oprindelse, Fra Nation-
almuseets Arbejdsmark 1941, 71—82 bls.; Björn Th. Björnsson, Brotasilfur,
111—126 bls.; Kristján Eldjárn í smágrein í Tímanum 23. des. 1956.
5) íslenzkt fornbréfasafn III, 174. bls.
6) Sjá tilv. rit, 95—100. Auk þess sem ég hef stuðzt við þessa ritgerð Krist-
jáns Eldjárns, hefur hann sýnt mér þá velvild að birta hér uppdrættina, sem
áður höfðu komið með ritgerðinni.
7) Díalógarnir eru gefnir út af Unger í Heilagra manna sögum, 1877. Þátt-
urinn sem hér er birtur, er í fyrra bindi, 251. bls.
8) Sjá Turville-Petre, Origins of Icelandic Literature, 1953, 136. bls., og rit,
sem þar er vísað til.
9) íslenzk fornrit IX, 179. bls.
10) Sturlunga saga, 1906, I, 304.