Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1969, Side 39

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1969, Side 39
GÖMUL HÚS A NÚPSSTAÐ 43 mikil fátækt og árið 1784 bættust ofan á miklir jar'ðskjálftar svo að mikið hrundi af húsum. Það er því ljóst að mjög margir heilir bæir hafa verið reistir að nýju um aldamótin og var þá óvenjuleg að- staða fyrir nýjan stíl að ryðja sér til rúms, og ætl'a ég að þá hafi risið bæir í hinum nýja burstastíl víða um Suðurland, enda þótt svo sé að sjá að til hafi verið eldri bæir af þeirri gerð. (Árið 1896 hrundu aftur flestir þessir bæir í Árnes- og Rangárvallasýslum, og þá má heita að burstabæirnir hyrfu í einni svipan, en öld timburhúsa kæmi í staðinn. Vissulega er blómaskeið sunnlenzku burstabæjanna á milli þessara geigvænu jarðskjálfta 1784 og 1896 eða aðeins 112 ár). Nú fer það ekki á milli mála, að bærinn á Núpsstað er að mestu leyti af burstabæjagerð, og þykir mér trúlegt að niðjar Hannesar Jónssonar bónda á Núpsstað, þess sem dó í Móðuharðindunum, hafi reist hann þegar þeir fóru að rétta við eftir harðindin, en þeir voru Ieiguliðar kirkjunnar unz Dagbjartur Jónsson keypti jörð og hús árið 1840. Mér þykir þó mögulegt að skálinn og jafnvel eldhúsið séu eldri. Þau hús eru bæði greinilega leifar af eldri húsaskipan og um skálann má segja að hann var sjálfur lítið notaður öðru vísi en sem umgangssvæði, en ekki ætlað sérstakt hlutverk eins og öðrum húsum á bænum. Það var því minni ástæða til að byggja skálann að nýju og sízt að hafa hann stærsta hús bæjarins. Um eldhúsið gegnir öðru máli, en það virðist þó hafa verið mjög tengt skálanum. Húsin stóðu samhliða með sameiginlegan vegg að nokkru á milli sín, gerð upp á mjög líkan hátt og sneru öðru vísi en öll önnur hús á Núpsstað. 1 þessu sambandi er vert að minnast hinna óvenju fornlegu hlóða, sem enn má sjá í eldhúsinu. Ég gæti hugsað mér að þessi hús væru frá því fyrir 1783, einkum skálinn og að hann hafi verið rúmlega 100 ára þeg- ar hann var rifinn. Þetta kann að þykja hár aldur á sunnlenzku húsi, en þess má þá geta til samanburðar að eldhúsið, sem ekki var nýtt ár- ið 1890, stendur enn tæpum 80 árum síðar,* svo að ekki er fjarstæða að skálinn hafi einmitt verið orðinn þetta gamall. Eftir er þá að gera sér grein fyrir Litlahúsinu. Trúlegt er að það sé frá sama tíma og bærinn og yngra en skálinn. Hér um vantar upp- lýsingar og þær eru hvergi að fá. Mér þætti trúlegt, að bærinn hafi verið reistur einhvern tíma á 19. öld (eftir 1840 þegar bóndinn hafði eignazt jörðina?) og þá hafi skálinn og eldhúsið verið látin standa, en ef til vill hresst eitthvað við. Þetta er þó aðeins ágizkun studd helzti veigalitlum rökum. Þó uppgerð þessara húsa sé fornleg, er hún þó * Sbr. þó neðanmálsgrein á bls. 26.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.