Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1969, Page 102

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1969, Page 102
106 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS kominn, að sagt sé berum orðum, hvers virði þær eru í vísindalegri umræðu. Undir allt sem Olsen segir um það efni get ég skrifað. 5. Fimmti kafli bókarinnar er um vitnisburð annarra fornminja og er mjög athyglisverður, ekki sízt fyrir okkur Islendinga. Eins og kunnugt er, eru mjög víða liér á landi munnmæli um hof, og telst Olsen svo til, að slíkar sagnir séu tengdar a. m. k. hundrað stöðum, og er þá alívíða bent á tóftir, sem eiga að vera leifar hofa. 1 fyrra hluta kafl- ans sýnir Olsen Ijóslega, hvernig allar líkur benda til, að fæst af þess- um hofasögnum sé gamalt, heldur hafi þær komið upp að langmestu leyti á 19. öld, eftir að fornfræðilegur áhugi fór að færast í aukana. Þess er ekkert dæmi, að hægt sé að sanna eða jafnvel gera líklegt, að rústir, sem nú eru kallaðar hofrústir, hafi verið nefndar svo alla leið aftan úr heiðni. Munnmælin hafa komið upp smátt og smátt í ald- anna rás og af ýmsum ástæðum, en þó langmest á síðustu tímum. Þar með er að sjálfsögðu ekki loku fyrir skotið, að sumar svonefndar hofrústir geti verið það í raun og veru, en allur þorri þeirra hlýtur að falla fyrir þeim dómi, að slíkt sé öldungis óvíst, harla ósennilegt eða fráleitt með öllu. Margir fræðimenn hafa verið mjög gagni’ýnis- litlir á íslenzkar hofrústir og jafnvel tekið sér fyrir hendur að flokka þær í ýmsar gerðir eftir því sem lag rústa og stærð o. fl. gefur tilefni til að þeirra dómi, og það án þess að nokkur fornleifarannsókn hafi farið fram. Naumast þarf að taka fram, hversu fráleit slík vinnu- brögð eru, en þess ber þá líka að geta, að hinir hafa einnig verið margir, sem hafa gert sér ljóst, að þorri hofrústanna svonefndu er það alls ekki í raun og veru, og má þar nefna bæði Kálund, Daniel Bruun og Finn Jónsson. Þeir eru á sömu braut og Olsen, en hann fer þó miklu lengra og lætur ganga með beini. Hann viðurkennir þó, eins og sjálfsagt er, að ekki má hrapa að því að dæma rúst úr leik, meðan enginn uppgröftur hefur átt sér stáð. Þess eru mörg dæmi í fornleifa- fræði, að rannsókn, sem hafin er með litlum vonum, hefur þó leitt í Ijós mikilvægan og óvæntan árangur. En um þorra hinna svonefndu hofrústa hér á landi eru vonirnar mjög litlar eða engar. Og svo er einnig hitt, að við vitum svo ógjörla, að hverju ber að leita eða hvernig helgihús hafa verið, að harla lítið er eftir að fara til þess að geta dæmt um, hvort rúst, sem upp er grafin, er í raun og veru helgihús eða eitthvað annað. Við vitum ei hvers biðja ber. Þrátt fyrir þetta væri þó næsta nauðsynlegt að gera ítarlegar rannsóknir á nokkrum
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.