Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1969, Qupperneq 123
KIRKJA HAMBORGARMANNA
127
Elzta heimild um kirkju íslandsfaranna í Hamborg er frá 1534.
í eftirfarandi innfærslu mun vera vikið að frumsmíði kirkjunnar:
„Ith. noch hebbe ick uth gheven Frerick dem tymmerman vor dat
hus tho makenn, dat in yslant auam in de Hanenforde summa 50 mk“,
því að á næstu síðu reikningsbókarinnar er færð greiðsla handa
„smed“ fyrir allmörg „par henggen“ fyrir „slot“ á „Karken in ys-
lant“.
Hinn 3. marz 1539 fær Jakobcke Klygebarch 3 mörk og 6 skildinga
fyrir 34 borð „tho der karcken in ysselant." I sama mánuði eru honum
einnig fengnir peningar fyrir nagla. 1541 fær Peter nokkur Betken
eitt mark fyrir 8 álnir lérefts, og vísað er í því sambandi til kirkj-
unnar á Islandi. Ári'ð 1543 getur að lesa: „Item dem koeppersleger
geven vor kopper und nagel 16 mk 6 sk to der karcken in isselant in
der Hanenforde“. Á þessu ári mun hafa verið sett dugandi eirþak á
kirkjuna. 1563 segir svo: „weiniger awerst 12 fl. so den timmerluden
so de karck beteret, tho lohne gegeven syn scholen", og enn fremur:
„darna awerst tho behof der karck 4 sk vor nagele utgegeven“.
Árið 1581 afhendir Jasper van Doren, nýkominn frá Islandi,
bræðralaginu 160 fiska,, „de van dat olde Holt von der karcken
gekofft was“. 1586 segir svo: „Hirnan Jacob Hambrock gegeven 6
fl. vor ene Dele, de thor Karcken is gekamen“. Sá verzlunarmáti virðist
hafa verið tíðkanlegur, að gamalt timbur frá kirkjunni hafi verið selt
á íslandi, að því er virðist inn á reikning kaupmanna, fyrir vörur
sem landsmenn höfðu að bjóða (fisk og sauði). 1589 afhenda Otten
Ebelinck og Mathias Poppe sjóði bræðralagsins verð þriggja sau'ða,
sem þeir höfðu keypt fyrir gamalt timbur frá kirkjunni. Af þeim pen-
ingum fær timbursmiður nokkur 12 sk sem verkalaun og 13 sk fyrir
nagla og timbur.
Á sama hátt voru peningar teknir úr sjó'ði bræðralagsins til þess
að kaupa kirkjugripi og messuskrúða. Sú skoðun stenzt naumast, að
ornamenta og instrumenta St. Önnu-kapellunnar við Péturskirkjuna
í Hamborg, sem íslandsfarar höfðu á sínum vegum til 1535, hafi verið
tekin til þessara þarfa. 1536 var búnaður hennar mestallur seldur á
Islandi gegn fiski. 1538 er lögð fram peningaupphæð til þess að út-
vega skírnarsá. Og á sama ári fær „Her Jochym der Hanenforder
kalpelane" 5 mk 3 sk fyrir síðan kjól (hempu). Hinn 12. marz 1539
eru tvær upphæðir greiddar fyrir að steypa klukku. 1540 fær einn
„Prekant" „ut bywel Dyrck Wassmers 2 mörk fyrir „parmenten
sanckbock" og enn eitt mark fyrir „bede boke“ (bænabók). Árið 1541
eru kennimanni einum greiddir 3 skildingar eftir ávísun Goderth