Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1969, Qupperneq 150
154
ÁRBÖK FORNLEIFAFÉLAGSINS
lega þrifin og verkfæri geymd á staðnum, öðrum skilað. Torfefni öllu
og moldarhaugum úr veggjum annaðist Gunnl'augur í Hátúni flutn-
ing á. Grjótið flutti Eiríkur á Völlum.“
Theodór Daníelsson, Njáll Guömundsson.
Við þessa skýrslu er því að bæta, að eftir viðgerðina voru öll þil
máluð að nýju, og gerði það Sigurður Snorrason málarameistari. Ætti
bærinn í Glaumbæ ekki að þarfnast teljandi viðgerða á næstu árum
fram yfir árlegt viðhald og eftirlit, en þó er enn eftir að smíða upp að
mestu tréverkið í Gusu annað en grind.
Þjóðminjavörður kom að Keldum hinn 17. ágúst og athugaði ástand
gömlu bæjarhúsanna. Ljóst er, að á næstu árum verður að ráðast í
rækilega viðgerð þeirra, bæði gamla skálans og annarra húsa. Bað-
stofan er verst farin, og má heita, að norðurendinn sé að falli kominn,
enda mun ekkert hafa verið hreyft við henni síðan hún var reist árið
1891. Er sýnt, að taka verður fyrir húsin eitt af öðru árlega og gera
öll bæjarhús þannig upp í áföngum, en Keldur eru afar fjölsóttur
ferðamannastaður, og koma þangað þúsundir manna árlega, og ríður
því á að hafa þar allt í sem beztu lagi, og á þetta reyndar við um alla
þá staði, sem eru undir vernd Þjóðminjasafnsins. Þessi mikli ferða-
mannastraumur veldur sums staðar nokkrum erfiðleikum, þar sem
núverandi bæjarhús standa fast við gömlu byggingarnar, og verður
því allmikill átroðningur af þeim sökum.
Á undanförnum árum hefur oft verið rætt um framtíð gamla bæj-
arins á Þverá í Laxárdal, sem var byggður um 1850 og búið hefur
verið í til skamms tíma. Bærinn er mjög gott sýnishorn af norð-
lenzkum burstabæ, enda er hann reisulegur og myndar ásamt kirkj-
unni, sem er hlaðin steinkirkja frá 1878, mjög góða heildarmynd af
kirkjustáð á 19. öld. Auk þess er bærinn merkilegur sögulega séð, en
í honum var Kaupfélag Þingeyinga stofnað 1882.
Síðustu árin hefur bærinn hrörnað nokkuð, og síðastliðið vor þótti
sýnt, að gera yrði baðstofuna upp frá grunni, ef hún ætti ekki að eyði-
leggjast, enda hafði ekki verið hreyft við henni um 120 ára skeið.
Voru heimamenn á Þverá fengnir til að endurbyggja báðstofuna, og
kostaði safnið þá viðgerð. Á næstu árum verður væntanlega að end-
urbyggja önnur bæjarhús, en þessum bæ ætti að vera borgið héðan af,
og verður hann að öllum líkindum tekinn á fornleifaskrá innan tíðar.
— Á Þverá var sú fyrirhyggja höfð, að nýja íbúðarhúsið var reist all-