Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1977, Page 95

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1977, Page 95
beit af austurlenskri gerð 101 brotin munstur og' undningamunstur af steyptu verki, þrykkiþynnur og víravirki — eigi yfirleitt heima í Evrópu og þó einkum innan býs- anska svæðisins. I býsanska ríkinu og Italíu og Vestur-Evrópu virðist hafa verið hætt að nota þessa beltisgerð þegar eftir nokkrar aldir, þar sem hún aftur á móti er talin hafa haldist fram á hámiðaldir í aðalstöðvum Islams. Á evrasísku steppunni hefur gerðin sums staðar verið í notk- un fram á vora daga. Einnig í Tyrklandi hafa belti af þessari teg- und verið þekkt á seinni öldum. Merkilegur flokkur tiltölulega gamalla beltisbeita á evrasísku stepp- unni eru steyptar, oft gegnbrotnar beitir, skreyttar gömmum og öðr- um kynjadýrum og jurtateinungum. Þekktastur er þessi flokkur í Ungverjalandi og kallast þar síð-avarískur flokkur og er frá 8. öld eða þar um bil, en svipaðar beitir þekkjast austur þaðan og jafnvel alla leið til Kóreu og Japan. Skreytið á þessum beitum er talið hafa þróast í innri og eystri hlutum Asíu. Ef til vill eiga dýrin frumætt sína að i'ekja til dýraskreytis Skýþa-tímans mörg hundruð árum fyrir Krists burð. Frá 8. öld og nokkrar aldir þar á eftir virðast steyptar beitir með upphleyptu jurtaskreyti eða nielló-skreyti með sassanídískum — eða ef til vill eftir-sassanídískum — einkennum vera ráðandi í beltisút- búnaði víðast hvar á evrasísku steppunni, og það eru beitir af þessari tegund sem dreifast gegnum Rússland til landanna við Eystrasalt og við köllum venjulega austurlenskar beitir á Norðurlöndum. 8’ mynd. Tveir lífverðir á máluðu, veggþiljunum í hassetissal ghaznavidíslcu hall- arinnar í Lashkari Bazar hjá Bust, Afglianistan, frá byrjun 11. aldar. Hx'ö veggmyndarinnar hefur verið um 1,3 m. Hermennirnir eru klxddir buxum, tu- niku og kaftan, með kylfu um öxl. Klæðin eru úr mislitum efnum og með marg- vislegum munstrum; á hermanninum til vinstri er fataefnið rautt og þeim til hægri dökkblátt. Um upphandleggina eru breiðir borðar (úr brókaði?) með ávxn- ing af letri, tiraz-borðar til merkis um tignarstig mannsins. Niður fra mitti vinstra mannsins hanga tveir langir lindar úr sama efni og klæðin að öðnc leyti. Sams konar linda mun hinn hermaðurinn einnig hafa haft, þótt nu se elcki hsegt að greina það. Fyrir ofan þessa linda bera baðir liermennii'nir malmslegið belti með fjórum löngum hangandi sprotum og öðru sem þar hangir, á vinstra manninum poki (og litill klútur?) og á hægra manninum þrír óþekkjanlegir hlutir. Kylfan, tiraz-borðarnir og beltið með sprotum og hlutum er allt saman syllt á vinstri hermanninum, en silfurlitað á þeim hægri. Ljósmyndin tekin eftir Schlumberger 1952, pl. XXXI :2, rissið eftir höfundinn. — Two soldiers on the Painted u-all panel in the throne hall of the Ghaznavid pálace at Laslikari Bazar, Afghanistan, beginning of llth century.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.