Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1977, Side 157
SKÝRSLA UM ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS 1976
163
19. öld og verið í notkun nokkuð fram yfir síðustu aldamót. Engin
þeirra er lengur uppistandandi óskemmd, en fremur auðvelt ætti þó
að vera að lagfæra myllukofann á Keldum á Rangárvöllum. Sömuleið-
is er búið að koma rjómabúinu á Baugsstöðum í Flóa í gang, en það
var knúið vatnshjóli.
Vindmyllur voru mun færri, en þó stendur ein þeirra enn í Vigur.
Fyrir örfáum árum var sáralítið vitað um útbreiðslu þessarar
tækni i landinu. Fyrir hálfgerða tilviljun var hafizt handa um söfnun
heimilda varðandi þetta atriði, og nú í sumar fengust upplýsingar um
hundruð mylla, gerð þeirra og nytjar víðsvegar um landið.
3. Reynt var eftir megni að gera uppdrætti af þeim mannvirkja-
leifum, sem snerta þessa aflögðu atvinnuhætti og safnað myndum
eða þær skráðar. Auk þess voru skráðar frásagnir um fjölmargt
annað varðandi þjóðsiði og vinnubrögð, sem með flaut í viðtölum.
Sömuleiðis var leitazt við að kanna, hvaða svið hefðu öðrum fremur
verið einkennandi fyrir einstök byggðarlög, svo að snúa mætti sér að
þeim í næstu atrennu.
Helzta gagnrýni, sem fram kom á þessa aðgerð, var einmitt sú, að
verkefni safnaranna hefðu verið of einhæf. Sú gagnrýni var í sjálfu
sér fyllilega réttmæt, en ástæðurnar voru einkum þessar:
í fyrsta lagi þótti nauðsynlegt að fá úr því skorið, hvort jafnal-
niennur atvinnuháttur og fráfærur hefði verið stundaður að öllu leyti
a sama hátt eða með breytilegu móti eftir landshlutum, áður en
raðizt væri að þeim verkefnum, sem meir voru bundin einstökum
héruðum .
I öðru lagi voru flestir safnararnir eðlilega byrjendur og höfðu ekki
alizt upp við þau vinnubrögð og venjur, sem spyrja skyldi um. Því
var talin nokkur hætta á, að sitthvað færi úrskeiðis og samfellt yfir-
lit yrði brotakennt, nema þeirn væru sett fyrir ákveðin meginverk-
efni og fengju sem mesta tiltæka undirstöðufræðslu varðandi þau,
áður en tekið væri til starfa.
Þessi fáu verkefni reyndust líka enn tímafrekari en búizt var við,
enda voru viðtölin mjög nákvæmlega og samvizkusamlega unnin. Of
mikill tírni fór einnig í öflun fjár til starfseminnar, eins og brátt
niun nánar að vikið.
Erfitt er að meta árangur sumarstarfsins á þessu stigi. Hvað magn
snertir, þá var skilað um 5000 vélrituðum síðum af öllu landinu eða
sem svarar miðlungsbók á hvern safnara. Nú er stöðugt verið að
vinna úr þessu efni, en það er ærið verk eins og gefur að skilja, og
niðurstöður eru varla væntanlegar fyrr en á næsta ári.