Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1981, Síða 30

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1981, Síða 30
34 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS flestum fremur, með aðferð til að finna menjar eldgosa í iskjörnum úr Grænlandsjökli og öðrum gaddjöklum. í eldgosum berst meira eða minna af gasi, einkum brennisteinssamböndum og kolsýru, upp í lofthjúp jarðar og dreifist aðallega sem móðumyndandi ördropar (aerosol), er smámsaman ber- ast aftur til jarðar. Þar sem móðan sest, eða rignir niður, á jökla eykur hún rafmagnsleiðni yfirborðslags hjarnsins, sem síðar breytist í ís, og það er þessi leiðni, sem Hammer mælir og fær samtímis allgóða vitneskju um stærð gosanna. Nú hafa árleg lög í Grænlandsjökli verið aldursákvörðuð með öðrum aðferðum, svo að ekki skakkar nema einu til örfáum árum síðustu 1-2 árþúsundin og þetta gildir einnig um menjar eldgosanna. Eitt af allra fyrstu gosunum, sem Hammer fann menjar um í Grænlandsjöklinum, var gosið í Lakagígum 1783 og sker það sig mjög úr öðrum gosum varðandi stærð, svo sem vænta mátti. Þar eð Eldgjárhraunið er svipaðrar stærðar og Skaftárelda- hraunið leitaði Hammer í ískjörnunum fyrir beiðni undirritaðs að gosi svipaðrar stærðar og Skaftáreldar, frá öldunum næstu fyrir og eftir 900,55 og fann eitt og aðeins eitt svipaðrar stærðar, frá árinu 934.56 Skv. þessu má nú telja öruggt, svo vart skakkar meira en einu ári til eða frá, að Landbrotshraun og etv. Eldgjárhraunið allt, sé frá árinu 934. Athyglisverð í þessu sambandi eru þau ummæli séra Jóns Steingrímssonar, að stórhlaup hafi komið undan Mýrdalsjökli 934.57 Um það atriði og önnur ártöl varðandi eldgos í skrifum séra Jóns verður fjallað í annari ritsmíð. Það kann að þykja ólíklegt, að bæir hafi verið reistir á Landbrotshrauninu þegar á 11. eða 12. öld ef hraunið rann árið 934, sem sé, að það hafi verið álíka gamalt, eða jafnvel nokkru yngra en Skaftáreldahraunið nú er, þegar farið var að reisa bæi á því. Þess er þá að geta, að býlin sem nefnd eru í elstu máldögunum eru á hraunjaðrinum, sem víðast er skammt utan við 20 m hæðarlínuna (sbr. kort II), og hafa ber í huga, einkum með reynslu af Skaftáreldum, að myndun svo mikilla hrauna sem Skaftáreldahrauns og Landbrotshrauns verður til þess að græða upp sandauðnir framundan og fram með þeim og auka gróðursæld þeirra svæða, sem þar voru gróin fyrir. Þessu veldur m.a. það, að ylur er í því vatni, sem undan slíkum hraunum rennur, um ára- og jafnvel áratuga skeið eftir myndun þeirra, og síðar verða það kaldavermsl, sem undan þeim koma. Sveinn Pálsson getur þess í dagbók sinni frá 1793, hversu mjög silungsveiði jókst í vötnum undan Skaftárelda- hrauni í Meðallandi fyrstu árin eftir Skaftárelda og hve gróðursæld varð mikil.58 Saga byggðar á Brunasandi, sem séra Gísli Brynjólfsson hefur rakið,59 er fróðleg í þessu sambandi. Brunasandur var auðn að langmestu þegar Skaftár- eldahraunið brann, en ekki leið nema hálf öld þar til fyrsta býlið, Orrustu- staðir, reis við jaðar hraunsins og brátt bættust fleiri við bæði við hraunjaðar-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.