Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1981, Page 123
127
GAMLA RÚSTIN VIÐ FÓELLUVÖTN
straff að mæta fyrir sama pólitírétti forlíkunar commisaris Guðmundur
Jónsson á Lágafelli og hreppstjóri Vigfús Halldórsson á Suðurreykjum til
þess að vera vitni um þetta málefni, og ef krafist verður, sanna framburð
sinn með eiði sínum. Þessi póstur birtist þar hjá ektamanni þeirrar
ákærðu, Guðmundi bónda Guðmundssyni á Lágafelli.
Gullbringu- og Kjósasýslukontori lta mars 1823
Undir minni hendi og innsigli
Finsen“
Hér er röggsamlega til orða tekið, tilnefndur stefnudagur, þar sem klögu-
málið verði tekið til meðferðar. En um framhaldið er nú ekkert vitað, því
þarna fellur tjaldið. Ekkert hefur fundist nánar um þetta klögumál í bókum
sýslumanns. Það verður því að álykta að viðkomandi persónur og þeirra nánir
vandamenn hafi sjálfir jafnað þessa misklíð með sér, síðan tilkynnt það sýslu-
manninum og þar með hafi málið verið úr sögunni.
Guðmundur Guðmundsson maður Guðrúnar Hákonardóttur varð ekki
maður gamall. Hann drukknaði í fiskiróðri frá Seltjarnarnesi þann 6. apríl
árið 1830, var hann þá um hálffertugur að aldri. Á þessum mannskaðadegi
fórust ekki færri en 15-20 menn í sjó af Seltjarnarnesinu, að vísu áttu þeir ekki
allir þar heima. Þegar Guðmundur á Lágafelli féll frá, hafði hann átt sex börn
með konu sinni og það sjöunda fæddist sumarið eftir að faðirinn dó. Það var
Otti, fæddur 1830. Efnahagur þeirra Guðmundar og Guðrúnar virðist hafa
verið góður. Dánarbúið eftir hann hljóp á 824 ríkisbankadali, þar á hvíldu
skuldir 64 rbd. 74 sk. Komu þá til skipta 756 rbd. 74 sk.
Guðrún Hákonardóttir hefur verið kona um hálffertug er hún varð ekkja.
Hún bjó áfram á Lágafelli um nokkur ár. Árið 1835 er hún þar í tvíbýli, talin
41 árs gömul ekkja og „yfirheyrð ljósmóðir“ (þ.e. lærð ljósm.). Börn hennar
eru þá talin hjá henni þessi: Ásta 17 ára, Guðmundur 14 ára, Hákon 13 ára og
Símon 12 ára. Annað fólk ekki skráð á heimilinu. Árið 1840 er Guðrún komin
að Stardal, talin búandi ekkja, ,,á jörðina“ er skráð í manntalið. Hjá henni
eru þá aðeins tveir synir hennar, Guðmundur 20 ára og Einar 16 ára, annað
fólk ekki talið. Guðrún býr enn í Stardal 1845 og er þá orðin fimmtug kona.
Hjá henni eru þá tveir synir hennar, Hákon 23 ára og Einar 20 ára. Auk þeirra
er talin fertug vinnukona, Friðsemd Vormsdóttir, og tvö tökubörn, 9 og 15
ára. Árið 1850 er Guðrún Hákonardóttir ekki talin lengur fyrir búi í Stardal,
sögð „húskona er lifir af sínu“. Þá er þar talin búandi dóttir hennar Ásta
Guðmundsdóttir ekkja, rúmlega þrítug, hjá henni er vinnumaður Oddur
Oddsson 31 árs og nefndur ,,fyrirvinna“, með honum eignaðist Ásta son er
Einar hét. Árið 1855 eru þær mæðgur Ásta og Guðrún Hákonardóttir
komnar að Laxnesi. Ásta er talin þar fyrir búi og er ráðsmaður hjá henni Jón