Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1901, Page 34

Eimreiðin - 01.05.1901, Page 34
fræði, fjölda af ritgjörðum um heimspeki og fornfræði, ritgjörðir um Vesturheimsflutninga og Reykjavík, riddarasögur og rímur, háfleyg heim- spekiskvæði, svo sem »Hugfró« og »Prometheus«, og meiningarlausar þulur. Hann hefir snúið Orvar-Odds sögu í söguljóð og þýtt Ilíons- kviðu undir fornyrðalagi. Hann hefir fyrstur manna, að kalla má, ritað um fagurfræði á íslenzku. Og svo hefir hann ritað söguna af Heljar- slóðarorrustu. Kvæði Gröndals hafa hingað til verið á dreif um hin og þessi blöð og tímarit og smákver, og var því hin mesta þörf á að fá þau í einni bók. Nú er svo orðið og munu flestir fagna bókinni vel. Því miður vantar hér þó ýmislegt. Stærri kvæðin úr »Gefn«, »Hugfró« og '>Brísingamen« hafa ekki verið tekin upp í bókina, og heldur ekki Örvar-Odds drápa, Tólfálnakvæðið né Ragnarökkur (nema einstöku kaflar). En samt er í bók þessari nóg efni til þess, að les- andi getur fengið skýra hugmynd um, hvernig skáldskap Gröndals er varið, og hvað langt hann nær. Gröndal íklæðir hugsjónir sínar skrúðmeira máli en nokkurt annað íslenzkt skáld, og fer það oft vel, en stundum illa. Hann er ákafa- maður og hættir við öfgum Gott dæmi þess er í »Brísingameni«, þar sem hann gerir ketti Freyju að tígrisdýrum; staðurinn er einkennilegur, og því set ég hann hér: Glóandi augu gegnum loftið sveima og geysa fram sem svipur loga-branda sveiflaðar út um ókunnuga heima, sem ölduhryggir milli landa líða í löngum bugðum fram um ægis-geima, og mjallar fyrir froðudrekar skríða, svo mundu tígrar tveir um loftið æða töfraðir grimdarseið með kerru fríða og ekkert má þá hefta eða hræða. Hér á þessum stað og víða í kvæðabókinni má nú segja, að of mikið sé af góðu gjört. En svo má og nefna aðra staði, þar sem Gröndal öllum mönnum betur hefir sýnt, hvað tíguleg og mikilfengleg íslenzkan getur orðið í kveðskap. Til dæmis mætti margt taka. Ég vil benda á suma staði í »Prómetheus«. Byrjun þess kvæðis er næstum því ein- stök. í sinni röð í íslenzkum skáldskap: Upp af foldar fimbulvíðum geimi fjallið aldna rís úr heimi og að skýjum ægigráum nær, sól á víxl og svölum frostum slungið, sveipað jökli, logum innan þrungið, en við rætur dunar djúpur sær. Kveður loft af hræfuglanna hljóði, hrynja fossar út um dalamót, brimlöðrandi blæs í jötunmóði búri dimt við hamra fót.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.