Eimreiðin - 01.05.1901, Síða 42
122
efninu. En það fær í höndum hans íslenzkan blæ, þar sem því verður
komið við. Það er rétt og samhljóða meginreglum þeim, sem skáldið
hefir sett sér. Y. B. snýr alls eigi Davíðssálmum orðrétt í Ijóð. Hann
tekur aðeins aðalefnið úr hverjum einstökum sálmi og yrkir um það.
Hann fylgir eigi ávalt jafnnákvæmt sálmaefninu. Stundum víkur hann
ef til vill heldur langt frá því. En þess ber að gæta, að sumir beztu
sálmar hans fara mjög langt frá orðunum í sálmasafni Davíðs, t. a. m.
sálm. 150. Og fegurri sálm hefir V. B. aldrei ort um það efni.
Búningurinn á þessu sálmasafni V. B.s er eigin eign hans. Þar
koma fram sömu snildarmerkin og á öðrum Ijóðmælum hans. Kveðandin
er ágæt. Og málið er mjög gott. Einstöku orð hef ég fundið, sem
ég kann eigi vel við í snildarverki þessu, þótt þau hafi fengið hefð í
íslenzku biblfumáli. En þetta eru smámunir, sem enga þýðing hafa.
Búningurinn á sálmunum í þessu safni V. B.s fer eftir efni sálm-
anna sjálfra. í því tilliti skiftast sálmarnir í tvo aðalflokka:
1. Þegar sálmarnir eru að efninu til mestmegnis lýsingar, þá verða
þeir í höndum V. B.s sönn snildarverk, fægðir gimsteinar. Málið er
ágætt, kveðandin hljómfögur og samlíkingamar forkunnar-fagrar. Sálmar
þessir eru honum hjartfólgnastir. Hann vandar þá mest. í þessu efni
má benda á sálmana: 15, 18, 19, 29, 45, 46, 50, 93, 96, 98, 104, 105,
iii, 114, 127, 137, 148, 150. Kristileg von breiðir ásthlýjan gleði-
blæ yfir sálma þessa.
2. Þegar sálmarnir eru að efninu til mestmegnis bænir, þá er
nokkru öðru máli að gegna. Sálmarnir eru auðvitað mjög vel ortir og
kristilegir í öllu tilliti. En bænirnar eru eigi eins »brennandi í andan-
um«, eins og þær eru fagrar að búningnum til. Trúin er ekki eins
áköf, eins óg hún er skrautbúin. Iðrunin grætur eigi eins beiskum tár-
um, eins og hún er hrygg ásýndum.
Tvískifting þessi hefir komið í ljós í öllum sálmum V. B.s. Fegurð
vonarinnar hrífur hann meir en kraftur trúarinnar.
Oft hefir séra Valdimar Briem verið líkt við Hallgrím Pétursson.
Þetta er næsta eðlilegt, því þeir eru mestu sálmaskáld íslenzku þjóðar-
innar. En þeir eru ólíkir, enda hafa þeir átt við ólík lífskjör að búa.
Hallgrímur var skáld trúarinnar, en Valdimar er skáld vonarinnar. Þetta
kemur fram í sálmum þeim, sem þeir hafa báðir ort um sama efni,
t. a. m. í sálmunum 606 og 468 í íslenzku sálmabókinni (»Alt eins og
blómstrið eina« og »Ég horfi yfir hafið«).
Séra Valdimar Briem er nú 53 ára að aldri. Það er óskandi og
vonandi, að honum auðnist enn þá að auðga íslenzkar bókmentir að
nýjum kvæðasöfnum. Skáldmæli hans eru íslendingum til sóma og
heilla. " H. P.
BJÖRN JÓNSSON: ÍSLENZK STAFSETNINGARORÐBÓK.
Reykjavík 1900.
þegar blaðamennirnir tóku sig saman hér1 um árið um að koma
festu á stafsetningu í íslenzku, fagnaði ég þessu fyrirtæki, ekki sízt
1 Réttritun höfundarins er breytt samkvæmt stafsetning Eimreiðarinnar, sem er
hin sama 0g Blaðamannafélagsins. RITSTJ.