Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1901, Síða 80

Eimreiðin - 01.05.1901, Síða 80
ióo UM ÞÓRSDRÁPU Eilífs Goðrúnarsonar heflr prófessor FinnUr Jónsson ritað langa grein í »Oversigt over det kgl. Danske Videnskabernes Selskabs Forhandlinger« 1900. Er þetta afartorskilda kvæði þar fyrst prentað stafrétt eftir handritunum og þvi næst skýrt visu fyrir visu. Að lokum er það prentað með almennri réttritun og þeim leiðréttingum, sem höf. hefir stungið upp á í skýringum sinum, og síðan dönsk lesmálsþýðing á öllu kvæðinu. V. G. UM NOKKUR BRAGLISTARATRIÐI HJÁ FORNSKÁLDUNUM (»On some Points in Skaldic Metre«) hefir IV. A. Craigie, M. A. í Oxford skrifað alllanga og mjög lærða ritgjörð í »Arkiv f. nord. Filologi« XVI, 341—384, þar sem hann sýnir fram á ýmsa galla á bragfræði prófessors Sievers’ og setur fram nýjar bragreglur, sem hann styður með miklum fjölda af dæmum úr kvæðum fornskáldanna, og virð- ast sannanir hans svo öflugar, að eríitt mun verða þeim að hnekkja. V. G. UM ISLENZKA SÖNGLIST (»Studier over islandsk Musik«) hefir kennari i sönglistarsögu við háskólann í Khöfn dr. Angul Hammerich skrifað mjög fróðlega ritgerð í »Aarb. for nord. Oldk. og Historie« 1899, bls. 273—316, þar sem hann meðal annars sýnir fram á, að tvísöngurinn íslenzki sé af útlendum rótum runninn og sé sami söngurinn og tíðkast hafi annarstaðar í Norðurálfunni kringum árið 1000. I ritgerðinni er mikill fróðleikur, sem vert væri fyrir alla þá, sem fást við íslenzka sönglist, að kynna sér. V G. UM JURTAGRÓÐUR Á SNÆFELLSNESI (»Vegetationen paa Snæfellsnes«) hefir cand. mag. Helgi Jónsson ritað langa grein í »Videnskabel. Meddelelser fra den naturhist. Forening i Kbhavn« 1900 (sbr. »Nýjar ísl. uppgötvanir«, Eimr. VII, 73). V. G. ISLENZK RIT Á ÞÝZKU. M. phil. Carl Kuchler hefir þýtt á þýzku af sög- um séra Jónasar prófasts Jónassonar bæði »Hungurvofan« (Das Gespenst Hunger) í »Die Romanwelt« VII, 9—10 (Berlín 1899) °g »Gletni lífsins» (Launen des Lebens) í »Weser-Zeitung«, nr. 19257, 19261 og 19263 (Bremen 1900). Báðar þessar þýð- ingar ásamt þýðingu á »Brot úr æfisögu« eftir sama höfund hafa svo komið út í einu lagi sem III. bindi af bókasafninu »Bibliothek nordischer Meister-Erzáhler« (Leipzig 1900). — Auk þess hefir herra Kiichler ritað ýmsar greinar um íslenzk rit og málefni, t. d. »Schwert und Krummstab« í »Neuer Parnass« II, 20—21 (Berlín 1899), »Islándische Dichter in Deutschland« í »Internationale Litteraturberichte« VI, 7 °S 9—11 (Leipzig 1899), »Ein islándisches Drama in Deutschland« í sama tíma- riti VI, 19—20 og »Englische Frevelthaten« í »Jade-Zeitung«, nr. 284 (Varel í Oldenburg 1899). F. G. RITGERÐIR UM ISKENZK EFNI. I »Fránkischer Kurier«, nr. 452 (5. sept. 1898) hefir dr. August Gebhardt í Nurnberg ritað grein um sögu holdsveikinnar á Islandi og hinn nýja holdsveikraspítala þar (Das neue Leprosenhaus auf Island«). I »Mitth. d. k. k. Geogr. Gesellschaft in Wien« 1898 (10.—11. h.) hefir hann og ritað yfirlitsgrein yfir jarðfræðisrannsóknir dr. Þorvalds Thóroddsens á íslandi (»Siebzehn Jahre geologischer Forschung auf Island«) og í sama riti 1899(7—8. h.) Hefir hann ritað grein um Hlið í Kollafirði og héraðið umhverfis, þar sem flothylki Andrées fanst 14. maí 1899 (»Ein par Bemerkungen úber den Fundort der Andréeschen Schwimmboje Nr. 7«). V. G.

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.