Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1902, Qupperneq 36

Eimreiðin - 01.01.1902, Qupperneq 36
3<5 arógæfu, aö augu alþýðunnar opnuðust til fulls fyrir þýðingu hennar. Eins og flestum mun kunnugt, áttu Danir á árunum 1848—50 í ófriði út af hertogadæmunum Slésvík og Holtsetalandi. I þeim ófriði báru þeir hærra hlut og uxu af frammistöðu sinni í stríðinu í augum annarra þjóða. En mest uxu þeir þó í sínum eigin aug- um og það getur verið hættulegt, ekki sízt fyrir smáþjóðir, sem lítið eiga undir sér. Sigurinn og friðurinn leiddu af sér sjálfbirg- ingsskap og um leið deyfð og dvala. Pjóðin eins og tók á sig náðir og hvíldi makindalega á herfrægðinni, enda hættir þjóðun- um við að verða svefnsamt á þeirri sæng. En þeir vöknuðu óþægilega upp úr þessum væra dúr 1864. Pá bar síðari Slés- víkurófriðinn að höndum og urðu Danir þar herfilega undir. Peir urðu að láta af höndum Suður-Jótland, eitthvert frjósamasta og auðsælasta héraðið í ríkinu. Pað er ekki unt í fám orðum að lýsa þeirri sorg og gremju, sem gagntók alla þjóðina við þessar ófarir. Hún sat hnipin eftir. missinn og var eins og hún skoðaði hann bæði sem þjóðarógæfu og þjóðarsmán. Sorg og ógæfa getur leitt bæði einstaka menn og heilar þjóðir til örvæntingar, en það getur líka leitt til farsældar og blessunar, og svo var um þetta. Pegar sárasti söknuðurinn var liðinn frá, tóku hinir betri menn og fram- gjarnari á meðal þjóðarinnar að hugsa um að græða sárin, í stað þess að barma sér yfir þeim. Peir komust að þeirri niðurstöðu, að einasti vegurinn til að bæta missinn væri sá, að reyna að vinna það upp inn á við, sem þjóðin hafði látið úr greipum ganga út á við. Fyrsti og áþreifanlegasti árangurinn af þessari setningu var sá, að menn tóku sig til og fóru að rækta landið í stórum stíl, fóru að láta sér umhugað um að notá hvern blett og hvern skika, svo ekkert færi til ónýtis, og áður langt var liðið, fóru að blasa við gular kornekrur og grænir skógarlundar, þar sem áður voru lynggróin heiðadrög og sandorpnir flákar. En það var ekki einhlítt, að nokkrir menn tækju sér fram bæði um þetta og annað, sem til framfara horfði. Pjóðin var fámenn og þess vegna var um að gera, að allir legðu sig fram, til þess að eitt- hvað yrði ágengt að marki. Pað var ekki nóg, að einstakir menn kæmust í skilning um, að fyrsta skilyrðið til að ná fögrum þroska, ‘ er að setja sér háleitt takmark; þjóðin í heild sinni varð að finna til þess og hver einstakur maður varð að leggja fram alla sína krafta, til að vinna í þjónustu föðurlandsins. Pað var um að gera,
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.