Eimreiðin - 01.01.1902, Síða 57
57
sem höfðu rétt úr kryppunni. Og tilsvarandi bylting varð á öllu
innra lífi þeirra.
V. ÁRANGURINN.
Pess hefur oftar en einu sinni verið getið hér að framan, að
alþýðuháskólarnir hafi lengi fram eftir mætt mótspyrnu úr ýmsum
áttum. Sumir hafa jafnvel talið þá hreint og beint skaðlega og
borið þeim á brýn, að þeir blésu hroka og sjálfsþótta inn í læri-
sveinana, án þess að veita þeim í aðra hönd nokkuð til að þykj-
ast af eða hreykja sér yfir. Paö ræður nú að líkindum, — enda
segir sig sjálft —, aö innan um allan þann sæg af fólki, sem gengið
hefur á alþýðuháskólana, kunni að finnast nokkrar manneskjur,
sem hafa ofmetnast af skólaverunni og drukkið í sig stórar hug-
myndir um sitt persónulega gildi, án þess að nokkur tilsvarandi
breyting yrði á innra manni þeirra. En þetta er aðeins undan-
tekning. Öllum mönnum, sem hafa litið á málið stillilega og óvil-
halt, ber saman um, að alþýðuháskólarnir hafi ómótmælanlega
haft mjög mikla þýðingu fyrir alt þjóðlíf Dana, og sumir af þeim
útlendingum, sem hafa kynt sér þetta mál, játa það hreint og beint,
að þeir þekki ekki þá hreyfingu á síðari tímum, sem hafi haft jafn-
djúp og gegnumsýrandi áhrif á líf einnar þjóðar.
Pau áhrifin, sem mest ber á og fyrst koma í ljós, eru áhrif
skólaverunnar á hugarfar, tilfinningar og siðferðislíf nemendanna,
breytingin, sem verður á öllu þeirra háttalagi og dagfari. Björn-
stjerne Björnson fer svofeldum orðum um þetta: »Pað and-
ans og hjartans líf, sem hefur dreifst meðal alþýðunnar gegnum
háskólana, er alveg sérstakt í sinni röð og þekkist hvergi í heim-
inum nema í Danmörku. Fyrsti og beinasti ávöxturinn er aukin
sómatilfinning, sem leiðir til dugnaðar og framtakssemi. En dýr-
mætustu ávextirnir eru þó: aukin lífsgleði og meira siðferðisþrek
og fróðleiksfýsn, sem hefur leyst þúsundir af heimilum úr viðjum
deyfðarinnar og vanþekkingarinnar.«
Hjá nágrannaþjóðunum, Svíum og Norðmönnum, hafa áhrifin
verið hin sömu, þótt þau að vísu hafi aldrei orðið jafn djúp og
víðtæk og hjá Dönum. Einn með merkari mönnum í Noregi hefur
lýst þýðingu og áhrifum alþýðuháskólanna á þessa leið: »Pað er
þessum skólum að þakka, að alþýðan er farin að gera sér grein
fyrir- merkingu orðanna »þjóð« og »ættjörð«, og um leið farin að