Eimreiðin - 01.01.1902, Qupperneq 58
58
gefa þeim reglulegan gaum. Peir hafa vakið lestrarfýsnina hjá al-
þýðunni og glætt hjá henni smekk fyrir og áhuga á skáldskap,
bókmentum og sögu ættjarðarinnar. Yfir höfuð að tala hafa þeir
vakið alþýðuna til lífs í andlegu tilliti og styrkt siðferðistilfinning-
una. Par sem áður fyr voru haldnar danssamkomur, drykkju- og
átveizlur og spilagildi, eru nú haldnir málfundir og samkomur með
fræðandi fyrirlestrum, söng og saklausri gleði. Heimskan og
hleypidómarnir er óðum að hverfa. Auðvitað eiga háskólarnir
ennþá sína mótstöðumenn, sem halda því fram, að áhugi og sjálf-
stæði ungmennanna, sem hafa gengið á alþýðuháskóla, og afskifti
þeirra af opinberum málefnum, sé ekkert annað en mont og
glamur. En þeir eru að verða færri og færri.«
Háskólarnir mega eiga það með réttu, að þeir hafa útbreitt
þekkingu og vakið sálir manna í hverjum krók og kyma um alla
Danmörku. feir hafa borið gleði og ánægju inn í hreysi, þar sem
áður ríkti óánægja, deyfð og kjarkleysi. Peir hafa vakið hjá þjóð-
inni ást á endurminningum sínum og móðurmáli. Peir hafa um-
skapað marga veika, sljóva og kjarklausa aumingja, reist þá við
og gert úr þeim sjálfstæða, hugsandi og framgjarna ættjarðarvini.
Peir hafa vakið hjá þjóðinni alvarlegan áhuga á trúarefnum, svo óvíða
finst fegurra og dýpra trúarlíf en meðal bændastéttarinnar í Dan-
mörku, og þetta er mjög þýðingarmikið, því framfaraáhugi er ætíð
samfara áhuga í trúarefnum, svo framarlega sem trúarstefnan fer
í rétta átt.
Alþýðuháskólarnir hafa að dómi allra, sem til þekkja, stutt
að því, að sópa burtu deyfðinni og drunganum, sem áður var yfir
alþýðunni, og eins og vakið nýtt þjóðlíf meðal Dana. Pað er eins
og vorgróðurinn, bæði í líkamlegu og andlegu tilliti, þjóti upp þar
sem háskólahreyfingin fer yfir. Pess sjást greinileg merki hvar
sem litið er til. Einn af merkari rithöfundum Dana, skáldið
Zakarías Níelsen, sem er nákunnugur lífi alþýðunnar, fer um
þetta svofeldum orðum1: »Alþýðuháskólarnir hafa sett sér það
mark og mið »að vekja og veita tilsögn«, og í þorpum vorum út
um land má sjá þess ljósan vott, að þeim hefur tekist það. Peir
hafa vakið af dvala menn og konur svo þúsundum skiftir, komið
þeim í samband við hið fegursta og bezta, sem lífið hefur að bjóða,
og knúð kynslóðina áfram til dugnaðar og framtakssemi . . . .
1 Danmark i Skildringer og Billeder II, 490.