Eimreiðin - 01.05.1916, Side 5
8i
vöðva. Þess ber að geta, að heit böð og bakstrar hafa að sumu
leyti lik áhrif og köld böð, en aftur á móti ekki hálfvolg. Heita
vatnið þreytir þó skjótar taugakerfið, svo að verkanir kalda vatns-
ins eru öruggari. Til þess aðeins að auka blóðsókn til einstakra
iima eða líffæra, er hægt að brúka heita og kalda bakstra jöfnum
höndum.
Allskonar böð, bæði heit og köld, einkum baðanir eða sund
í sjó eða í hreinum ám og stöðuvötnum, hafa ekki aðeins styrkj-
andi og hressandi áhrif á taugakerfið og vöðvana yfirleitt, heldur
einkum og sérílagi á miðkerfi þau, er stjórna andardrættinum og
hreyfingu hjartans, og ennfremur örvandi áhrif á meltingarfærin.
Andardrátturinn verður dýpri og léttari, og hjartaslögin kröftugri,
og nýtt fjör og líf virðist færast um mann allan. Sumir halda
því fram, að köld böð skerpi líka skilningarvitin, einkum sjón og
heyrn. Sjóndaprir rosknir menn geta stundum lesið gleraugna-
laust nokkra stund, eftir að þeir hafa verið í baði.
Skoðanir manna, bæði lækna og almennings, hafa á ýmsum
öldum verið mismunandi eða frábrugðnar, að því er snertir vatns-
bakstrana sem heilbrigðismeðal. Á sumum öldum hafa menn mest
notað heita, en á öðrum aftur kalda bakstra. Sannleikurinn er sá,
að þegar um bólgu er að ræða, hverju nafni sem nefnist og hvar
sem hún er, útvortis eða á yfirborði líkamans, þá eru áhrif heitra
og kaldra bakstra nálega jafnmikil -og jafngóð; hvorirtveggju hita
og örva blóðsóknina til þess hluta líkamans, sem bakstrarnir eru
á lagðir. Oðru máli er að gegna með þrútin eða bólgin sár, við
þau verður að leggja heita bakstra, vegna þess að ekki er svo
auðvelt að gera kalda bakstra sóttkveikjulausa. Við bólgu í innri
líffærum, t. d. botnlangabólgu og lungnabólgu, hafa menn um
langan aldur eingöngu notað heita vatnsbakstra. En nú á seinni
tímum eru þó læknar víða um lönd farnir að nota kalda bakstra
við sjúkdóma þessa, og virðast þeir reynast betur en hinir heitu.
Auk vatnsbakstra með meira eða minna köldu vatni nota
menn nú margvísleg böð og böðunaraðferðir við marga sjúkdóma,
einkum þegar um næma sjúkdóma er að ræða. Einkum eru hin
svonefndu hálfböð mikið notuð, og koma oft að góðu haldi.
Pau fara fram á þann hátt, að helt er yfir sjúklinginn 20—250
heitu vatni, og líkaminn svo jafnharðan þurkaður og nuddaður
fljótlega. Pví næst er snögglega helt alveg köldu vatni yfir hann,
og líkami hans svo aftur nuddaður og þurkaður. Við þessa böð-