Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1916, Síða 7

Eimreiðin - 01.05.1916, Síða 7
83 um betri en kaldir, en þaö er við gigt, allskonar gigtveiki, hverju nafni sem nefnist, þó einkum liðagigt og vöðvagigt. Við sumar tegundir af taugagigt og taugabólgu virðast kaldir bakstrar þó stundum eins góðir. Einhver bezta lækningaaðferðin við liðagigt eru heitir bakstrar, og þá bezt að nota þá aðferð, er nú skal greina: Taka skal ullardúk, t. d. rekkjuvoð úr ull, og 'leggja niður í sjóðandi vatn og láta hana liggja þar í 2—3 mínútur, vinda síðan upp voðina, en þurvinda þó ekki, eins og gert er við köldu bakstrana, og sveipa henni síðan umhverfis hin sjúku liðamót eða þá limi eða líkamshluta, sem gigtsjúkir eru. Utan yfir hina heitu og votu voð er svo sveipað þurri ullarábreiðu. Bakstrarnir eru látnir liggja í 10—15 mínútur og þá skift um þá. Er nægilegt, að leggja 3—4 bakstra á hina sjúku staði í senn, og ekki nota aðferðina nema einu sinni á hverjum degi. Á eftir heitu bökstrunum er mjög gagnlegt að nudda hina sjúku limi í hálfa klukkustund eða meira. Pessa lækningaraðferð þarf oft að endurtaka, daglega í margar vikur eða jafnvel mánuði, en hún er þá líka, eins og fyr segir, sú árangursbezta lækning á næstum allskonar gigtsjúkdómum, bæði í liðamótum og vöðvum. En samfara bökstrunum þurfa sjúklingarnir að fá holla og rétta fæðu, helzt mikið af mjólk, grænmeti og ávöxtum, nægilega hreyfingu, ef þeir þola hana, og hæfilegan klæðaburð. Enn ber þess að geta, þótt öllum sé það kunnugt, að heitir, helzt brennheitir, vatnsbakstrar erú eitthvert hið bezta meðal við nálega öllum sársaukum og hverskonar eymslum í líkamanum. Oft er og hægt að nota sömu aðferð, þegar um er að ræða þján- ingar, eins og við liðagigt. En það má um heitu bakstra-lækn- ingaraðferðirnar segja hið sama eins og um nálega allar aðrar lækningaaðferðir, að oft er mest undir því komið, hvernig bökstr- unum er fyrir komið, og má þá fyrst og fremst benda á, að mest er undir því komið, að bakstrarnir haldist heitir og liggi á réttum stað, þangað til skift er um þá. Tað er því næstum mest áríðandi, að umbúðirnar um bakstrana séu góðar og rétt reyrðar. Eins og af framanskráðu má sjá, er liægt að nota vatnið á margvíslegan hátt, og hefi ég þó aðeins drepið á einstöku atriði. Eg hefi þannig alls ekki minst á hin eiginlegu lækningaböð, sem nú eru notuð um allan hinn mentaða heim, en þó einkum á Pýzkalandi og í Austurríki, á Frakklandi, í Svíþjóð, Noregi og

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.