Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1916, Síða 26

Eimreiðin - 01.05.1916, Síða 26
102 vant við látinn, og ef mikill gustur stendur af þeim þingmanni eða þeim næsta, þá lendir hún á gólfið og liggur þar; en svo kemur önnur á eftir henni, og önnur þar á eftir, og enn önnur — skæðadrífan heldur áfram, jafnt og þétt, en alveg miskunnar- laust, og ef háttvirtir þingmenn entust til að tala nægilega lengi, mundi þingið fenna í kaf. — Öllum þessum breytingartillögum í réttri röð hefir svo skrifstofustjórinn eða einhver annar góður maður vafið upp á hæstvirtan forseta eins og hvert annað hespu- tré — öllum, með stökustu nákvæmni. Peim, sem koma of seint, er bætt inn í röðina, þar sem þær eiga heima, ásamt tilhlýðilegu nota bene um undantekningu frá þingsköpum. — — Nafnaköll og áminningar — alt, sem fyrir getur komið, — er komið á sinn stað. Svo þegar síðasti háttvirti ræðumaðurinn leggur saman........... þú skilur, — heyrist smellur í fjöðrinni og hesputréð fer á stað. Hægt og hatignarlega vindur það ofan af sér allan lopann — hægt og hátignarlega — án þess að nema staðar eitt augnablik til að anda. Háttvirtir þingmenn verða að ábyrgjast sig sjálfir, hvort þeir fylgjast með eða ekki. Og þeir fylgjast ekki með — ekki einn einasti, held ég mér sé óhætt að fullyrða, — enginn hefir undið upp á þá allan lopann í réttri röð. — Atkvæðaskráin — hafi hún nokkur verið, — er týnd — hggur heima — varð eftir á flokksfundi. Og það, sem kom eftir að atkvæðaskráin var samin, — týnt, alt saman týnt, — komið ofan í hrúguna — inn í flekkinn — yfir til næsta þingmanns. — — »Breytingartillaga a þingskjali 652,« segir hæstvirtur forseti. — »0g breytingartillaga við þá breytingartillögu á þingskjali 780.« — Jón Jónsson í Meiri- hlutanum hamast í hrúgunni sinni og leitar og leitar í dauðans of- boði. Svo hrifsar hann frá Jóni Jónssyni í Sannfæringu-sinni. Pá má hann til að standa upp, — en breytingartillagan, sem hann er með í höndunum, er við frumvarp til laga um breyting á lögum um útflutning hrossa. — »Samþykt,« segir forsetinn, »með fimtán samhljóða atkvæðum. Breytingartillagan sjálf þar með fallin.« »F*etta var rangtU hrópar einhver. »Pingskapabrot!« »Hvað?« spyr annar og lítur upp. — »Hvað var þetta?« spyr Jón Jónsson í Sjálfstæðinu. »Eg veit það ekki,« svarar Jón Jónsson í Sann- færingu-sinni. En hæstvirtur forseti er kominn góðan spöl út í næstu breytingartillögu og háttvirtir þingmenn eru flumósa að leita í hrúgunni, hver hjá sér og hver hjá öðrum. »Nafnakall,« segir hæstvirtur forseti, og hægt og hátignarlega vitidur

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.