Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1916, Page 36

Eimreiðin - 01.05.1916, Page 36
I 12 VI. »Þú mátt ekki með nokkru móti halda, vinur minn, að ég sé búinn!« sagði þessi einkennilegi náungi undur-spaklega, og þyrl- aði framan í mig langri reykjarstroku. fað leyndi sér ekki, hvílíkt yndi hann hafði af því, að kvelja mig sem mest. Svo hélt hann áfram: »Hefirðu tekið eftir því, hverjir það eru, sem mest sækjast eftir þingmenskunni — í öllum þingræðislöndum — ekki einungis hér? — fað eru fantarnir og flónin, — fantarnir og flónin, vinur minn. — Betri mennirnir — sannmentuðu mennirnir, vitru mennirnir og valmennin — draga sig alstaðar í hlé. Sumstað- ar eru þeir ófáanlegir með öllu til að gefa kost á sér. Þ e i r v i t a, hvaða vandi fylgir þessari vegsemd. — Þeir hafa ekki skap til að æpa í kapp við landsmálaskúmana; enda yrði það árangurs- lítið, því að það er lygin, en ekki sannleikurinn, sem bezt lætur í eyrum fjöldans. t*eir hafa ekki skap til að smjaðra út atkvæði kjósendanna — háttvirtra — með fláttskap og fagurgala. — Og þeir hafa að lokum ekki skap til að sitja á ráðstefnu um velferð- armál þjóðar sinnar með mönnum eins og þér — vinur minn — og þínum líkum. Beir sjá, að það eru litlar líkur til, að þeir fái við neitt ráðið, þar sem vanþekkingin og smalahrokinn eru leidd til slíkrar tignar, og þar sem hver maður er reiðubúinn til að velta ábyrgðinni af því, sem illa fer, yfir á kjósendur sína. — Beir vilja heldur eiga orð sín ósögð, en segja þau til einskis í slíkum félags- lagsskap, og þola þá skapraun, að sjá þau einskisvirt — eða verra en það. Peir sjá — sér til mikillar sorgar —, hvert þetta þing- ræði og þjóðræði stefnir, og vita, að á því má ekkert bót vinna, annað en átakanleg þjóðaráföll og dýrkeypt reynsla. — En fantarnir og flónin sækjast eftir hnossinu. Fantarnir af hagsmunagræðgi, flónin af hégómaskap — fantarnir til að ná í völdin, flónin til að ná í vegtylluna. Pessa menn væmir ekki við að spjalla svo, að kjósendunum — háttvirtum — líki. Peir eru mjúkir eins og tankl í kosningabaráttunni, láta alstaðar undan, þar sem leitað er á, lofa öllu fögru, tala eins og hverjum manni þókn- ast og smjúga inn á hvern mann. Peir geta staðið á kjörfundum og sagt blygðunarlausustu lygar, án þess að depla augunum — eða látið aðra gera þetta fyrir sig, ef þá brestur vit eða þrek til þess sjálfa. Peir geta launað þeim á eftir úr féhirzlunni, sem þeir

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.