Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1916, Síða 37

Eimreiðin - 01.05.1916, Síða 37
fá lykilinn að með kosningunni. — Af þessum mönnum eru öll þing veraldarinnar furðu þéttskipuð, og því þéttskipaðri, sem kosn- ingarrétturinn er víðtækari, alþýðufrelsið meira og ábyrgðartilfinn- ingin minni.« »En hvers vegna ertu að þylja þetta yfir mér?« dirfðist ég að segja. »Hvern þremilinn varðar mig um alt þetta?« »Vertu nú góður, vinur minn! — í*að er ekki til neins, að stökkva upp á nef sér við mig. Pað veiztu. — Nú á ég eftir að segja þér aðeins eitt — aðeins eitt. fú ert ekki eiginlega fantur, greyið mitt, heldur aðeins flón — heyrirðu, hvað ég segi? — Aðeins flón! Pú bauðst þig fram af asnaskap, en ekki ill- vilja. Pú bauðst þig fram af hégómaskap. Pig langaði til að ljóma í þingsalnum, ljáta þjóna þér eins og höfðingja, láta skrifa upp ræðurnar, sem þú héldir, og síðan prenta þær og útbýta þeim, eins og einhverju spekinnar orði. Pig langaði inn í þessa laga- verksmiðju, sem kölluð er Alþingi íslendinga, án þess að hafa minstu hugmynd um, hvað þú ættir að gera þar. Pú sazt við að lesa gömul Alþingistíðindi til að læra úr þeim landsmála-glamur- yrði, og þú tókst saman í rúmi þínu heilar hrókaræður, sem þú ert nú að halda smátt og smátt — ein af þeim var ræðan um eyðslu- semi stjórnarnarinnar, sem þú hélst í dag. — Pú varðir þessu litla, sem þú hafðir nurlað þér saman, til að kaupa þér blygðunarlausa og samvizkulausa atkvæðasmala, því að án þeirra var engin von um að komast að. Þú lagðir á þig löng ferðalög um kjördæmið, og varðir til þeirra tíma og fé, í því trausti, að fá það alt saman endurgoldið, beinlínis eða óbeinlínis, ef þú yrðir kosinn. Skjálf- andi á beinunum af kvíða og með hrópandi samvizku gekstu út í kosninga-moldviðrið — allan róginn, lygarnar og blekkingarnar, og játaðir öllu, sem af þér var heimtað, — lofaðir öllum öllu, lofaðir þessum þvert ofan í það, sem þú hafðir lofað hinum, lof- aðir, lofaðir öllum öllu fögru, án þess að gera þér minstu grein fyrir efndunum. Alt þetta hefirðu unnið til þingmenskunnar og meira til, sem ég nenni ekki að vera að telja upp. Og hvað hefirðu nú áunnið með þessu? — Pað fyrst og fremst, að maður, sem var þér miklu hæfari, miklu betri og miklu vitrari, varð að sitja heima. Pað annað, að flokkurinn, sem studdi kosningu þína, hefir þig nú undir hælnum og þrælkar þig eins og skynlausa skepnu. Pað þriðja, að nú verðurðu að skríða hér opinberlega á þinginu fyrir kjósendum þínum — háttvirtum —, skjalla þá á

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.