Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1967, Blaðsíða 26
28
TAFLA 1. Meðaltöl fyrir frjósemi og einkunn eftir
fæðingarári áa og aldri og mismunur.
Aldur Frjósemi Einkunn Mismunur (B'-A)
A* B A B
Tala Mt. Tala Mt. Tala Mt. Tala Mt. Frjós. Eink.
2. v. 58 1,34 56 1,54 55 3,40 54 3,61 0,20 0,21
3. v. 58 1,52 56 1,55 55 4,28 50 5,22 0,03 0,94
4. v. 55 1,63 52 1,71 50 5,59 51 5,64 0,08 0,05
5. v. 49 1,67 50 1,62 46 5,97 48 5,01 =0,05 =0,96
6. v. 45 1,62 41 1,57 44 5,12 35 4,96 =0,05 =0,16
7. v. 44 1,33 38 1,62 40 4,58 36 4,87 0,29 0,29
* A = ær fæddar 1956. B = ær fæddar 1958.
Að því búnu var gerð rannsókn frávika á frjósemi og
einkunn áa eftir stofnum annars vegar og aldri hins vegar
og samtímis reiknuð samverkandi áhrif x aldursár, þ. e. rann-
sakað hvort frjósemi eða einkunn tæki mismiklum breyt-
ingum með aldri, eftir því hver stofninn væri.
I töflu 2 er sýnd útkoman úr þessari rannsókn frávika.
I töflu 2 kemur í ljós, að þegar báðir árgangar og öll ár
allra áa eru tekin saman, er munurinn á milli stofna raun-
hæfur í 99,9% tilfella bæði að því er varðar frjósemi og
einkunn fyrir vænleika lamba í kjöti. Ekki kemur fram
raunhæfur munur á aldursárum með tilliti til frjóseminn-
ar, en áhrif aldursins á einkunn eru raunhæf í 99,% tilfella.
Samvirk áhrif stofna og aldursára eru ekki raunhæf, þann-
ig að ekki hefur komið í ljós mismunur á aldursáhrifum á
frjósemi eða einkunn eftir stofnum.
Reiknað hefur verið út, hve há prósenta af lieildarsveifl-
um milli áa innan ára stafi af mismun milli stofna, og kom
þá í ljós, að stofnamismunur veldur ekki nema um 3,5% af