Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1967, Blaðsíða 85
87
Fyrstu fjögur árin auka fosfór og kalí uppskeruna lítið
sera ekkert, en úr því verður augljós uppskeruauki af báð-
um efnum. Hægt er að láta sér detta í hug, að uppskeran
aukist ekki af fosfór- og kalíáburði, fyrr en heilgrösin hafa
útrýmt verulegum hluta af hálfgrösunum.
TAFLA 2. Uppskera og uppskeruauki í tilraun nr. 36—56
frá Skriðuklaustri.
Ár Uppsk.hey hkg/ha Uppskeruauki hey hkg/ha
a Enginn áburður b 50 kg/ha N c 100 kg/ha N d. 100 kg/haN 30.6 kg/ha P e. lOOkg/haN 30.6 kg/ha P 66.4 kg/ha K
1956 7,2 4,1 10,0 10,9 11,8
1957 4,6 9,9 22,8 34,6 40,4
1958 3,2 4,7 9,8 18,4 20,4
1960 3,6 9,0 17,9 27,7 28,7
1961 5,5 8,2 16,7 23,6 22,9
1962 2,9 5,á 12,9 17,7 17,2
Meðalt. 6 ára 4,5 6,8 14,8 22,2 23,6
Á Skriðuklaustri var borið á tilraunina 18/6—10/7 og
hún slegin 10/8—1 /9.
Fyrsta árið varð lítill uppskeruauki af áburðinum, en úr
því varð hann verulegur.
V. Gróðurathuganir.
í tilrauninni á Hvanneyri var hlutdeild hálfgrasa og heil-
grasa í gróðursamfélaginu ákvörðuð öll árin, að undantekn-
um árunum 1958 og 1961. Niðurstöðumar má sjá á mynd 1.
Ekki virðist hafa orðið veruleg gróðurfarsbreyting á reit-