Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1967, Side 10
12
Allt er lélegt. —
Vel mætti nú vera útrætt frá minni hendi um djúpplæg-
ingartilraunina á Hvanneyri. En hér er meira í efni. Sú
ófæru-tilraun er aðeins áberandi dæmi um misskilning og
mistök í tilraunamálunum, sem virðast ætla að verða bænd-
um og þjóðinni allri dýr, og eru raunar orðin það.
Hin umrædda „tilraun með jarðvinnslu“ virðist vera hugs-
uð og miðuð við „að búa sem á bæ er títt“, hina lélegu rækt-
unarliáttu sem algengir eru. Allt er lélegt víða, en sem bet-
ur fer ekki alls staðar. Léleg framræsla, léleg jarðvinnsla og
oft óheppileg, léleg ræktun, lélegur árangur og lélegt tún,
sem gefur lélega uppskeru og lélega töðu.
Því miður bólar lítið á að hærra sé stefnt í ræktunarmál-
unum, og hið sama á, að verulegu leyti við um jarðræktar-
tilraunirnar. Margt af þeim virðist vera þannig hugsað og
sett á svið eins og harkaræktun sú er vel flestir bændur búa
við, sé eðlileg og sjálfsögð og ekkert meira né betra, sem að
beri að stefna, sé framundan.
Áður en lengra er haldið umræðu um þessa hluti ber
nauðsyn til að átta sig nokkuð á hugtökunum rœktun og
jarðrœkt, sem oft eru misnotuð bæði í ræðu og riti. Hér er
sá hængur á, að oss skortir í raun og veru nægilega greina-
góð orð um það sem á Norðurlandamálunum er nefnt „kul-
turjord“ og „jordkultur" o. s. frv., og þó alveg sérstaklega
orð um það hvort jörð (ræktað land) er, sem þar er kallað,
í „god kultur“ eða „god hevd“ (norska orðið hevd er notað
bæði um ræktunarástand jarðar og um áburð, auk þeirrar
þýðingar sem gildir í ísl. máli). Hér tölum vér yfirleitt að-
eins um „ræktað land“ eða „óræktað" og látum þar við sitja,
og mjög oft án þess að gera oss grein fyrir því hvort „rækt-
aða“ landið sem vér köllum svo, er raunverulega rœktað í
þess orðs réttu og fullu merkingu. Að sönnu tölum vér um,
að tún sé „í órækt“, sé „vel ræktað“, að tún sé „í ágætri
rækt“ o. s. frv. En yfirleitt virðast þessi hugtök vera dálítið
óljós nú orðið, jafnvel óljósari en áður var. Nú virðast þau
meira miðuð við sprettuna það og það árið fremur en hið